Lífið

Ein glæsi­legasta skvísa landsins komin á fast

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sindri Dýrason og Kolbrún Anna Vignisdóttir eru nýtt par.
Sindri Dýrason og Kolbrún Anna Vignisdóttir eru nýtt par. Instagram

Förðunarfræðingurinn og ofurskvísan Kolbrún Anna Vignisdóttir og myndlistarmaðurinn Sindri Dýrason eru nýtt par.

Kolbrún Anna hefur starfað í fjölbreyttum förðunarverkefnum, vinnur hjá RÚV og hefur séð um að halda Ice Guys strákunum sætum í samnefndum sjónvarpsseríum. 

Sindri útskrifaðist úr myndlist frá Listaháskóla Íslands í fyrra og starfar sem listamaður.

Bæði eru þau með einstakan og flottan stíl og er um að ræða eitt heitasta parið í listasenunni um þessar mundir. 

Kolbrún Anna og Sindri eru listrænt par.Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.