Skoðun

Þetta kostar

Davíð Már Sigurðsson skrifar

Enn sem komið gengur ekki að leiða til lykta kjaraviðræður hins opinbera og kennarasambandsins. Aðdragandinn hefur verið langur og rétt í þessu var hent í eitt stykki fjölmiðlabann á línuna.

Umfjöllun hefur verið margvísleg en rekstrarhagkvæmni skólakerfisins hefur verið í deiglunni, sem og kennarastarfið. Allavega er altalað hvað þetta sé nú allt of kostnaðarsamt og standi ekki undir væntingum verkkaupa.

Það er rétt að samfélagið tapar á því að kennarar séu í verkfalli. Afleiddar afleiðingar eru til að mynda þær að foreldrar geta þá ekki mætt til vinnu því þau þurfa að vera heima að sinna börnunum. Það er auðvitað ósanngjarnt, en hefur einhver heyrt af kjarabaráttu þar sem passað var sérstaklega upp á hún hefði engin áhrif? Rof á þjónustu á að hafa áhrif. Til þess er leikurinn gerður.

Nútímasamfélagsgerð gerir líka miklar kröfur um þjónustu. Þar er skólakerfið enginn eftirbátur. Fólk verður samt að átta sig á því að aukin þjónusta kostar meira. Þess vegna er hærra verð greitt fyrir matinn á Strikinu en á Grill 66. En sökum þess að peningurinn kemur úr vösum almennings í formi skatta, virðist verða einhver aftenging við fjármagnið. Þú veist að þetta kostar, en þér líður ekki endilega eins og þú sért að borga. Og þá tengir þú ekki við hvað kostnaðurinn felur í sér eða hvernig á að draga úr honum.

Það væri hægt að hætta niðurgreiðslu námsgagna og skólamáltíða flatt á línuna og tekjutengja skilyrði niðurgreiðslunna. En er fólk til í það? Samkvæmt síðustu sveitastjórnarkosningum þá er það ekki raunin.

Viljum við spara með því að minnka vægi dýrasta námsins. Síðast þegar ég gáði voru list- og verkgreinar frekastar á aðföng, mannafla og húsnæði. En var ekki breið samstaða um að auka framboð og vægi list-og verkgreina? Viljum við spara þar?

Ætti að spara með því að leggja einungis áherslu á bóknám, sem er lang ódýrast. Þess vegna moka háskólarnir árlega út fleiri hundruðum hundruðum lögfræðinga, sálfræðinga og viðskiptafræðinga á hverri önn. Mögulega er það upprunalega forsenda þess að iðnnám átti undir högg að sækja. Skammtíma sparnaður.

Það væri líka hægt að spara með því að leggja niður Skóla án aðgreiningar, því honum fylgir mikið þjónustustig en ekki endilega aðföng eða fjármagn. Því það kostar að koma til móts við alla, á öllum snertiflötum menntunar. En langar einhverjum að spara með því að úthýsa nemendum með sérþarfir?

Það kostar þó sennilega mest að halda ekki í hæft starfsfólk. Samkeppnishæf laun, starfsumhverfi og hvatakerfi er ekki til staðar, sem er ámælisvert. Það myndi tækla starfsmannaveltu, sem er kostnaðarsöm. Hæfara starfsfólk skilar meira framleiðni heldur en hinn almenni bolur. Og er það ekki það sem við viljum? Því það kostar.

Hugsjónin færir fjöll, en ekki að eilífu.

Höfundur er kennari.




Skoðun

Sjá meira


×