Tíska og hönnun

Djörf á dreglinum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hátískuheimurinn iðaði í gærkvöldi í Royal Albert Hall.
Hátískuheimurinn iðaði í gærkvöldi í Royal Albert Hall. Getty

Heitustu stórstjörnur heims klæddu sig upp í sitt djarfasta hátískupúss í gærkvöldi í tilefni af Tískuverðlaunahátíðinni sem haldin var í tónleikahöllinni Royal Albert Hall í London. 

Það er alltaf eftirsóknarvert að komast á gestalista hátíðarinnar sem var stjörnum prýddur. Meðal gesta voru Rihanna, A$AP Rocky, Charli XCX, Venus Williams og auðvitað Vogue drottningin Anna Wintour. 

Ýmis tískutengd verðlaun voru veitt yfir kvöldið. Alex Consani var sem dæmi valin fyrirsæta ársins, Jonathan Anderson hönnuður ársins fyrir starf sitt hjá JW Anderson og Loewe og Simone Rocha vann til verðlauna sem besti breski hönnuðurinn. 

Hér má sjá myndir af djarfasta klæðaburði kvöldsins: 

Rihanna ásamt ASAP Rocky. Hún klæðist hönnun Christian Lacroix úr línu frá árinu 2002.Neil Mockford/FilmMagic
Tískugoðsögnin Julia Fox klæddist hönnun Dilara Findikoglu.Stephane Cardinale - Corbis/Corbis via Getty Images
Listakonan Mathilda Mace eyddi ekki óþarfa efni í klæðaburðinn.Mike Marsland/WireImage
Söng- og leikkonan Leigh Anne Pinnock rokkaði rauðan, djarfan og mjög einstakan kjól.Samir Hussein/WireImage
Leikkonan og fyrirsætan Wallis Day í gegnsæjum kaki lituðum galakjól.Samir Hussein/WireImage
Fyrirsætan Amelia Gray var tilnefnd sem fyrirsæta ársins en þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Alex Consani.Karwai Tang/WireImage





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.