Gular viðvaranir og varasamt ferðaveður á Austurlandi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. desember 2024 06:53 Viðvaranirnar taka gildi nú klukkan 08:00, fimmtudagsmorgun. Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi klukkan átta fyrir hádegi í dag. Snjókoma, vindur og almennt slæmt veður til ferðalaga verður meginstefið í báðum landshlutum.
Viðvörunin á Austfjörðum gildir þar til klukkan fjögur aðfaranótt föstudags, en þar má búaast við norðan og síðan norðvestan 13 til 20 metrum á sekúndu, snjókomu og skafrenningi með versnandi færð. Á Suðausturlandi verður viðvörun í gildi til klukkan fimm síðdegis í dag. Norðan 15 til 25 metrar á sekúndu, hvassast austan Öræfa þar sem búast má við staðbundnum vinhviðum yfir 35 metrum á sekúndu. Um varasamt ferðaveður er að ræða, samkvæmt vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á föstudag:Norðan og norðvestan 5-15 m/s, hvassast austantil. Él á norðurhelmingi landsins, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Frost 1 til 8 stig. Á laugardag: Norðvestan 15-23 austanlands um morguninn og dálítil él, annars mun hægari og þurrt að kalla. Dregur síðan smám saman úr vindi fyrir austan og styttir upp. Frost 2 til 13 stig. Á sunnudag: Vaxandi sunnanátt og lítilsháttar væta, 13-23 m/s síðdegis og súld eða rigning, hvassast norðvestantil. Yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri, hiti víða 5 til 10 stig um kvöldið. Á mánudag:Sunnan- og suðvestanátt og vætusamt, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 5 til 13 stig. Kólnar síðdegis með skúrum eða éljum um landið vestanvert. Á þriðjudag:Suðvestanátt og él, en bjartviðri um landið austanvert. Hiti kringum frostmark. Á miðvikudag:Suðvestlæg eða breytileg átt og snjókoma með köflum. Svalt í veðri.
Veður Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Sjá meira