Hugleiðing um listamannalaun I Þórhallur Guðmundsson skrifar 6. desember 2024 14:02 Stjórnsýsla listamannalauna Rannsóknarmiðstöð Íslands, RANNÍS, fer með stjórnsýsluákvarðanir er varða listamannalaun á Íslandi. Rannís heyrir undir háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og starfar á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003. Tilgangur stofnunarinnar er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar. Rannís sér um stjórnsýslu listamannalauna. Um listamannalaun og hlutverk þeirra er svo fjallað um í lögum nr.57/2009. Stofnunin Rannís hefur sett sér gildi til að vinna eftir. Þau eru: Áhrif: Við höfum áhrif til góðs í samfélaginu með því að styðja við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Fagmennska: Við byggjum starfsemi okkar á þekkingu og faglegri umsýslu. Samstarf: Við vinnum öll saman að því að tryggja viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustu. Í samstarfi okkar sýnum við virðingu, erum jákvæð og lausnamiðuð. Stjórnsýslulög nr. 37/1993 fjalla um það hvernig ákvarðanataka í stjórnsýslu skuli hagað og hvers vegna. Þetta er leiðarvísir fyrir sérfræðinga hjá hinu opinbera, á báðum stjórnsýslustigum; ríkis og sveitarfélaga. Ákvörðunartaka sérfræðinga á báðum stjórnsýslustigum má kæra. Í 21.gr laga nr. 37/1993 er fjallað um hvenær eigi að veita rökstuðning fyrir stjórnsýsluákvörðunum. Þar kemur fram að ekki þurfi að veita rökstuðning fyrir veitingu eða synjun á styrkjum til vísinda, menningar eða lista. Gagnrýni listafólks á úthlutun Listamannalauna fyrir árið 2025 Síðustu daga hefur Rannís verið gagnrýnt af listafólki vegna ákveðinna þátta við veitingu síðustu listamannalauna. Gangrýnin hefur beinst að skort á gagnsæi við ákvörðun og að úthlutunarnefndir listamannalauna hafi synjað mikið að landsþekktu og oft verðlaunuðu listafólki um laun, og svo gagnvart ákvörðunartexta úthlutunanefnda. Þá hefur gagnrýnin líka beinst að skorti á rökstuðningi vegna synjunar. Mikið af listafólki leitar á ýmsum stigum umsóknarferlisins til sérfæðinga vegna þess að það er þess meðvitað að því fleiri sem koma að umsókninni, því líklegri er að hún hljóti náð nefndarinnar. Ég kom að nokkrum umsóknum í ár, las þær yfir, kom með tillögur að úrbótum, lagaði fjárhags- og verkáætlanir. Bar umsóknirnar saman við reglugerð og leiðbeiningar Rannís, áherslur stjórnar Listamannalauna fyrir árið 2025 og síðan en ekki síst, mats kvarða sem Rannís fylgir. Þá horfði ég nokkrum sinnum á leiðbeiningamyndbandið sem Rannís lét útbúa og á að auðvelda listafólki að sækja um og fá styrki. Ég taldi allar umsóknir sem ég las yfir mjög góðar, markvissar og uppfylla öll skilyrði sem koma fram á mats kvarða RANNÍS. Ég var því undrandi yfir því að margt landsþekkt listafólk fékk synjun, þrátt fyrir faglegar umsóknir og farsælan feril. Í kjölfarið óskaði ég eftir því í hópnum Menningarátökin á Facebook að listafólk sem hafði fengið synjun, sendi mér umsagnartexta synjunarinnar. Viðbrögðin voru mjög góð. Ég fékk ekki bara synjunartextann heldur undantekningarlaust líka umsóknir og fylgiskjöl. Umsóknir sem voru ítarlegar, oft upp á tugi blaðsíðna samanlagt með fylgiskjölum. Bakvið flestar þessara umsóknir lá margra mánaða hugsun og vinna. Áhugaverðast af öllu er að ég fékk frá listafólki áhugaverð bréf með vangaveltum um hlutverk og eðli listamannalauna og afkomuvanda listafólks. Eitt áttu öll bréfin sameiginlegt, listafólkið var allt mjög ósátt við hvernig synjanir voru orðaðar. Það vakna ýmsar spurningar um t.d. hvort að það sé hlutverk stjórnvalds að dæma gæði umsókna með orðum eins og “um margt áhugaverður listamaður en mjög mistækur” eða “skortir tilfinningalega dýpt.” Sérstaklega í ljósi þess að samkvæmt 21.gr laga nr.37/1993,stjórnsýslulaga, er það skýrt tekið fram að ekki þurfi að veita umsögn vegna synjunar á styrkjum til lista- og vísindafólks. Því sátu umsækjendur uppi með texta sem var upp á fáeinar setningar og án möguleika á því að fá að vita hvað lá þar að baki. Sumar nefndanna reyndu hafna listafólki á uppbyggilegan hátt: “Mjög góð umsókn. Rædd sérstaklega á fundi úthlutunarnefndar. Um afar verðugt verkefni er að ræða og nefndin vonar að það hljóti framgang. Hefði fengið úthlutun ef meira hefði verið til ráðstöfunar. Umsókn hafnað.” Er það hlutverk ríkisstofnunar að senda frá sér umsögn sem felur í sér hrós en um leið skýlir sér bak við takmarkað fjármagn, til að réttlæta höfnun? Og hvað með von nefndarinnar um að verkefnið hljóti síðar framgang, er verið að lofa launum að ári? Allt það listafólk sem ég hef verið í samskiptum við síðustu daga var á einu máli um að ef ekki sé hægt að rökstyðja synjanir ítarlegra en með nokkrum orðum, þá sé betra að fá staðlaðan synjunartexta eins og “stjórn listamannalaun þakkar þér fyrir umsóknina, ekki er hægt að bregðast við henni með úthlutun að þessu sinni. Við óskum þér alls hins besta í framtíðinni og vonum að þú sækir um á næsta ári, heldur en gildishlaðinn dóm um gæði umsóknar sem enginn rökstuðningur fylgir. Þessi vinnubrögð hafa aukið á hugrenningar hjá listafólki um að úthlutunarnefndir séu að hafna einstaklingum t.d. vegna uppruna eða kynferðis. Þá ýtir ógagnsæið undir þá tilfinningu hjá sumu listafólki að frændhygli ráði oft för er kemur að úthlutunum listamannalauna. Mögulegar úrbætur Stjórn Listamannalauna sendi 5.desember frá sér yfirlýsingu þar sem listafólk var beðið afsökunar á særandi ummælum við synjun listamannalauna og mun ræða hvernig eigi að standa að umsögnum í framtíðinni. Réttmæt gagnrýni kemur fram og hún er strax tekin til skoðunar og brugðist við. Þetta er dæmi um vandaða stjórnsýslu. Þá komum við að öðrum þætti sem var talsvert gagnrýndur við úthlutun listamannalauna fyrir árið 2025, skortur á fjármagni til útdeilingar. Þrátt fyrir að hinar skapandi greinar á Ísandi velti tugum milljarða, þá koma bara rúmlega 960 milljónir í launagreiðslur frá ríkinu. Þetta litla fé setur úthlutunarnefndir í vanda. Hverja á að styrkja og hverjum á að synja? Er hægt að synja virtu og verðlaunuðu listafólki með áratuga feril að baki? Hverjum á þá að synja? Sjö prósent af úthlutunarfé nefndanna var eyrnamerkt nýliðum og því voru rúmlega þrjátíu nýliðar sem fengu úthlutun að þessu sinni. Var þá hægt að synja öllum öðrum sem sóttum um og voru á vissu aldursbili t.d. 20-35 ára um laun? Þar sem ekki er hægt að synja margverðlaunuðu og virtu listafólki og ungu listafólki er ætluð sín prósent, er þá einhver hópur eða hópar sem frekar er synjað? Það er upplifun margra að svo sé. Ein leið til þess að eyða þessari upplifun listafólks, er að auka fé til ráðstöfunar fyrir nefndirnar og auka gagnsæi hvernig nefndirnar vinna. Væri ekki hægt að senda með synjun hversu mörg stig á matskvarðanum sem unnið er eftir, umsóknin fékk og láta fylgja með hversu mörg stig þurfti til að fá úthlutun? Þá er spurning hvort að RANNÍS ætti að bjóða upp á námskeið á vorin í því að sækja um listamannalaun? Slíkt námskeið rímaði ágætlega við leiðbeiningaskyldu stjórnvalda og yrði til þess að enn þá auðveldara yrði fyrir matsnefndir að fara yfir þær umsóknir sem berast, þar sem listafólk sem setið hefði námskeiðin, væri að senda frá sér svipaðar umsóknir. Næsta grein Í næstu grein ætla ég að fjalla um upplifanir umsækjanda sem telja sig jaðar- eða grasrótarlistamenn og þeirra sem tilheyra jaðarsettum hópum, af synjunum úthlutunarnefnda. Ég hef fengið töluvert af póstum frá listafólki sem telur sig ekki sitja við sama borð og annað listafólk þegar kemur að úthlutun launa, vegna uppruna síns, kynhneigðar eða hvaða kyni það tilheyrir. Ábendingar og vangaveltur um eðli listamannalauna má senda á thorhallur@rannsoknir-radgjof.net. Fullum trúnaði er heitið. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Listamannalaun Þórhallur Guðmundsson Mest lesið Halldór 21.03.2026 Halldór Reykjavík er Eiður Smári árið 1998 Bjarni Guðjónsson Skoðun Kveikjum neistann í Lindaskóla Margrét Ármann,Nanna Þóra Jónsdóttir Skoðun Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun Fátækt – í boði stjórnvalda með samþykki verkalýðsforustu Vilhelm Jónsson Skoðun Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir Skoðun Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Lausnir vegna lélegra loftgæða í Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Vantraustið og hinn venjulegi Íslendingur – hverjum á ég að trúa? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Afsláttur fyrir erlenda glæpamenn Anton Sveinn McKee Skoðun Skoðun Skoðun Fátækt – í boði stjórnvalda með samþykki verkalýðsforustu Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Vantraustið og hinn venjulegi Íslendingur – hverjum á ég að trúa? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Lausnir vegna lélegra loftgæða í Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Reykjavík er Eiður Smári árið 1998 Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Kveikjum neistann í Lindaskóla Margrét Ármann,Nanna Þóra Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir skrifar Skoðun Byrjum á byrjuninni – Framboð, ekki bara fjármögnun Hilmar Halldórsson skrifar Skoðun Enn ein hringekja vegatollaumræðu Runólfur Ólafsson skrifar Skoðun Hlaðborð gæluverkefna Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Vanfjármögnun leikskólanna er ekki valkostur James Robb skrifar Skoðun Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason skrifar Skoðun Hundseðlið sem heldur Íslandi niðri Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Jysk, veikindaréttur opinberra starfsmanna, Emmsjé Gauti og forréttindablinda Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Nálaraugað rammaáætlun og markaðsskrifstofa frá 1997 Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson skrifar Skoðun Afsláttur fyrir erlenda glæpamenn Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Launin mín eru ekki vandamálið. Hættu að kenna fátækum um mistök þín Ian McDonald skrifar Skoðun Öfugir hvatar hlutdeildarlána Sindri Pálmason skrifar Skoðun Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Elliði Vignisson skrifar Skoðun Er háskólamenntun trygging fyrir húsnæðisöryggi? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Afsal fullveldis – eða ekki. Er það einhver spurning? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Framkvæmdir auka losun en aðeins tímabundið Ívar Kristinn Jasonarson skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra eflir endó-meðferð Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hækkun örorkubóta eða raunverulegur stuðningur? Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Léttum á vegunum og eflum strandsiglingar Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þáttaskil í umræðu um blóðmerahald Árni Stefán Árnason skrifar Sjá meira
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun
Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir Skoðun
Skoðun Vantraustið og hinn venjulegi Íslendingur – hverjum á ég að trúa? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir skrifar
Skoðun Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason skrifar
Skoðun Jysk, veikindaréttur opinberra starfsmanna, Emmsjé Gauti og forréttindablinda Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Nálaraugað rammaáætlun og markaðsskrifstofa frá 1997 Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Skoðun Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson skrifar
Skoðun Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun
Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir,Jenna Huld Eysteinsdóttir Skoðun