Handbolti

Kristján Örn frá­bær í sigri í Íslendingaslag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristján Örn Kristjánsson fagnar marki fyrir íslenska landsliðið á HM.
Kristján Örn Kristjánsson fagnar marki fyrir íslenska landsliðið á HM. VÍSIR/VILHELM

Kristján Örn Kristjánsson átti mjög góðan leik þegar Skanderborg vann Bjerringbro/Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Skanderborg vann leikinn 33-30 eftir að hafa verið 17-15 yfir í hálfleik.

Kristján Örn var með tíu mörk í leiknum og gaf að auki þrjár stoðsendingar. Hann nýtti 71 prósent skota sinna í leiknum. Ekkert marka hans kom úr vítum.

Kristján var líka bæði markahæstur og stoðsendingahæstur í sínu liði. Frábær frammistaða í spennandi leik.

Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum hjá Bjerringbro/Silkeborg en hann klikkaði á vítakastinu sínu.

Guðmundur Guðmundsson stýrði Fredericia til fjögurra marka útisigurs á móti Skjern, 31-27, en íslensku leikmennirnir skoruðu ekki fyrir Fredericia í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×