Mætti syni sínum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. desember 2024 11:01 Feðgarnir Emil og Steinþór Freyr Þorsteinsson. kdn.is Fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaðurinn Steinþór Freyr Þorsteinsson mætti syni sínum, Emil, í Kjarnafæðismótinu í gær.
KA 3 og Völsungur 2 leiddu saman hesta sína í B-deild Kjarnafæðismótsins í Boganum á Akureyri í gær. Leikurinn var merkilegur fyrir þær sakir að þar mættust feðgarnir Steinþór og Emil. Steinþór, sem er 39 ára, leikur með Völsungi en hinn sextán ára Emil leikur með KA. Steinþór og félagar fögnuðu sigri í leiknum, 0-2. Steinþór spilaði ekkert sumarið 2023 en gekk í raðir Völsungs fyrir síðasta tímabil. Hann spilaði tuttugu leiki með liðinu í 2. deild og skoraði þrjú mörk. Völsungar enduðu í 2. sæti og komust þar með upp í Lengjudeildina. Völsungur er byrjaður að styrkja sig fyrir átökin sem framundan eru en félagið samdi við Elfar Árna Aðalsteinsson á dögunum. Hann hefur ekki leikið með Völsungi síðan 2011. Steinþór sneri heim fyrir tímabilið 2017 eftir að hafa leikið sem atvinnumaður í Noregi og Svíþjóð í nokkur ár og gekk til liðs við KA. Steinþór er uppalinn hjá Breiðabliki en lék með Stjörnunni í eitt og hálft tímabil áður en hann hélt utan. Steinþór hefur alls leikið 225 deildarleiki á Íslandi og skorað sextán mörk. Þá lék hann átta A-landsleiki á sínum tíma.
Besta deild karla Lengjudeild karla KA Völsungur Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira