Skoðun

Komin út í skurð

Eldur Smári Kristinsson skrifar

Það er alltaf að verða skýrara að ,,hinsegin réttindabarátta" er algjörlega komin út í skurð.

Við sem höfum verið að gagnrýna ,,hinsegin samtök" af þessum toga erum eftir langa reynslu farin að kunna að lesa á milli línanna þegar þau tjá sig í svona mónólógum (https://www.visir.is/g/20242663704d/hinsegin-rettindi-til-framtidar) (einræðum) eins og þessum. Samtökin '78 og fólkið þar hugnast ekki díólóg/samræður því þau geta ekki haldið þeim uppi og beita yfirvaldinu þegar í rökþrot er komið.

Samtökin '78 hafa nú sett ákveðinn fókus á fjölkæri upp á síðkastið. Það gera þau því þau eru eflaust að fatta að transið er komið á endastöð. Fjölkæri er nýmóðins orðskrípi fyrir lauslæti og gamaldags ekta feðraveldislegt fjölkvæni. Það er kannski alveg í takt við þá menningu sem ,,hinsegin aðgerðasinnar" hafa verið að daðra við frá miðausturlöndum og víðar. Markmiðið er jú að brjóta niður vestræn gildi og þá augljóst hvert skal leitað að bandamönnum.

Núna er talað um barnalögin og að íslensk stjórnvöld eigi að rýmka þau svo börn geti átt fleiri en tvo foreldra, því jú, lesbíur og hommar eiga það til að aðstoða hvort annað í þessum tilgangi.

Enn eina ferðina á að hengja sig aftan á árangursríka réttindabaráttu samkynhneigðra í annarlegum tilgangi.

Þetta snýst nefnilega ekkert um samkynhneigða eða börn okkar. Þetta snýst einfaldlega að afmá fleiri mörk og brjóta niður vestræn gildi bæði siðferðisleg og lagaleg.

Börn eiga skv. dómi Mannréttindadómstóls Evrópu og barnasáttmála sameinuðu þjóðanna rétt UMFRAM ALLT ANNAÐ að þekkja nákvæmlega til síns líffræðilega uppruna óháð hverskonar ranghugmyndir foreldrarnir kunna að glíma við er varðar eigin sjálfsvitund.

Markmiðið er að mjaka fjölkvæni inn á Íslandi með því að hengja sig aftan á löngu unna baráttu samkynhneigðra. Kunnuglegt stef. Komin

Fjölkvæni býr alltaf til valdaójafnvægi og stuðlar að ójafnrétti, jafnvel kúgun og ofbeldi.

Þetta vitum við og getum sannreynt með því að skoða söguna.

Ekki láta umbúðirnar blekkja ykkur. Innihaldið er rotið.

Þau eru búin að "vóka" sig í hringi og núna langt aftur til fortíðar.

Höfundur er formaður Samtakanna 22




Skoðun

Sjá meira


×