Innlent

Á­höfn Þórs bjargaði hval sem festist í legu­færi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Á sjötta tímanum í dag náðist að frelsa hvalinn.
Á sjötta tímanum í dag náðist að frelsa hvalinn. Landhelgisgæslan

Áhöfnin á varðskipinu Þór bjargaði hval sem hafði fest sig í legufæri norður af Viðey á sjötta tímanum í dag. Tilkynning barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gærkvöld og um miðnætti var séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar send til að kanna málið.

Landhelgisgæslan greinir frá því í tilkynningu að vegna myrkurs og erfiðra aðstæðna hafi erfiðlega gengið að skera af hvalnum og ákveðið hafi verið að áhöfnin á Þór skyldi gera tilraun til að bjarga dýrinu í birtingu.

Matvælastofnun var gert viðvart og voru fimm úr áhöfn Þórs sendir að hvalnum sem var rækilega fastur í legufærinu.

Klippa: Áhöfn Þórs bjargaði hval föstum í legufæri

Fram kemur að áhöfnin hafi notast við belg, tóg og kröku og reyndi að slæða upp spottann sem hvalurinn var flæktur í. Á sjötta tímanum hafi svo loks náðst að skera á tógið og dýrið í kjölfarið synt í burtu frjálst ferða sinna.

„Hvalurinn virtist frelsinu feginn eftir raunir næturinnar og dagsins,“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×