Tindastólsstelpur skoruðu þrjátíu stig í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2024 20:07 Randi Brown og Oumoul Sarr voru öflugar að venju hjá liði Tindastóls í kvöld. Vísir/Diego Kvennalið Tindastóls fer inn í jólafríið á miklu skriði en liðið vann sinn fjórða deildarsigur í röð í kvöld.
Tindastólsstelpurnar mættu í Garðabæinn og unnu 35 stiga stórsigur á Stjörnunni, 92-57. Stjörnuliðið var spútnikliðið í fyrra en það lítur fyrir að Stólarnir ætli að vera spútnikliðið í ár. Tindstóll er nú með jafnmörg stig og Keflavík, 14 stig, í þriðja til fjórða sæti deildarinnar. Liðið hefur unnið sjö af ellefu leikjum sínum. Stjörnustelpurnar stóðu vel í Tindastóls framan af leik og heimakonur voru einu stigi yfir í hálfleik, 44-43. Seinni hálfleikurinn var hins vegar eign Stólanna. Tindastóll vann þriðja leikhlutann 21-10 og skoruðu síðan 26 fyrstu stigin í lokaleikhlutanum. Þær höfðu líka skorað fjögur síðustu stigin í þriðja og náðu því að skora þrjátíu stig í röð. Eftir það var ljóst að Stólarnir myndu vinna stórsigur Randi Brown var atkvæðamest hjá Tindastólsliðinu með 32 stig en Lettinn Ilze Jakobsone var með 20 stig og 12 stoðsendingar. Hin senegalska Oumoul Sarr var líka öflug með 19 stig, 11 fráköst og 5 stoðsendingar. Fanney María Freysdóttir skoraði 13 stig fyrir Stjörnuna og Denia Davis- Stewart var með 12 stig. Kolbrún María Ármannsdóttir bætti við 10 stigum, 8 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Bónus-deild kvenna Stjarnan Tindastóll Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport „Þetta er ógeðslegt starf“ Körfubolti Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Enski boltinn Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Handbolti Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Formúla 1 „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Íslenski boltinn Hver er þessi Valverde sem allir eru að missa sig yfir? Fótbolti Fleiri fréttir Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum „Þetta er ógeðslegt starf“ Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Sjá meira