Vitória Guimares gerði 1-1 jafntefli við Fiorentina. Liðin enda því í öðru og þriðja sæti Sambandsdeildarinnar með 14 og 13 stig.
Vitória dugði jafntefli til að tryggja sér annað sætið og er eina liðið ásamt Chelsea sem tapaði ekki leik í Sambandsdeildinni. Fiorentina tapaði gegn APOEL í þarsíðustu umferð.
Vitória virtist ætla að vinna leikinn í kvöld eftir að hafa tekið forystuna á 33. mínútu en Fiorentina tókst að jafna rétt fyrir leikslok.
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði gestanna í kvöld en var tekinn af velli á 57. mínútu.
Andstæðingar liðanna tveggja í sextán liða úrslitum munu ekki liggja fyrir fyrr en í febrúar þegar umspilseinvígin klárast.