Lífið

Hefur grátið ó­teljandi tárum yfir missinum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Meghan Markle hertogaynjan af Sussex syrgir hundinn Guy.
Meghan Markle hertogaynjan af Sussex syrgir hundinn Guy. Diego Cuevas/Getty Images

Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex og Hollywood stjarna, opnaði sig upp á gátt á Instagram í gær með einlægri færslu sem einkenndist af mikilli sorg.

Hundur hennar og Harry prins Guy lést fyrir stuttu síðan og skrifar Meghan falleg minningarorð til hans á samfélagsmiðlunum.

„Árið 2015 ættleiddi ég bikkil hund frá hundaathvarfi í Kanada. Hann hafði áður búið í skýli í Kentucky og var sagður eiga örfáa daga eftir. Ég tók hann upp og varð ástfangin.

Athvarfið talaði um hann sem litla gæjann eða the little guy því hann var svo lítill og viðkvæmur og þess vegna skírði ég hann Guy. Og hann var besti gæi sem nokkur stelpa gæti beðið um.“

Meghan bætir við að þau sem fylgdu henni á Instagram áður en hún giftist inn í bresku konungsfjölskylduna hafi fengið að sjá mikið af honum á miðlinum.

„Hann var með mér þegar ég var í tökum fyrir Suits, þegar ég trúlofaðist (og gifti mig), þegar ég varð mamma. Hann fylgdi mér í gegnum allt. Þögnina, kaosið, rólegheitin, þægindin.“

Meghan skrifar sömuleiðis að Guy hafi lent í hræðilegu slysi stuttu áður en hún flutti til Bretlands. Hann hafi í kjölfarið þurft að fara í margar aðgerðir yfir nokkra mánuði og hafi ekki getað farið af dýraspítalanum.

„Læknarnir sögðu að hann myndi aldrei geta labbað aftur en Dr. Noel Fitzpatrick sagði að hann gæti það. Harry og ég keyrðum seint á kvöldin eftir lokun til að geta heimsótt Guy á meðan hann hafnaði sig í Surrey.“

Hjónin eru þakklát fyrir Noel og hans teymi og alla þá sem hjálpuðu Guy.

„Mörg ykkar munu sjá Guy í nýju sjónvarpsseríunni minni og ég vona að þið skiljið hvers vegna ég er niðurbrotin eftir að hafa misst hann. Ég held að þið verðið líka svolítið ástfangin af Guy.

Ég hef grátið fleiri tárum en mögulegt er að telja. Tár sem fá þig til þess að fara í sturtu með fáránlega von um að vatnið fái þig til að finna minna fyrir þeim eða að þú getir látið eins og þau séu ekki þarna. En tárin koma og það er allt í lagi líka.

Takk fyrir mörg ár af skilyrðislausri ást, yndislegi Guy minn. Þú getur aldrei skilið hversu mikið þú gerðir fyrir lífið mitt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.