Thea tryggði Val jafntefli með marki á lokasekúndunum Smári Jökull Jónsson skrifar 11. janúar 2025 18:38 Thea Imani jafnaði alveg undir lok leiksins. vísir / anton brink Valskonur gerðu 25-25 jafntefli við Malaga þegar liðin mættust í 16-liða úrslitum EHF-bikarsins í handbolta. Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Vals um næstu helgi.
Um var að ræða fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum EHF-bikarsins en seinni leikurinn fer fram að Hlíðarenda eftir viku. Valskonur voru með frumkvæðið nánast allan leikinn en heimalið Malaga var aldrei langt undan. Valur náði mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleiknum og var með 15-13 forystu að honum loknum. Svipað var uppi á teningunum í síðari hálfleik. Valur var alltaf skrefinu á undan en tókst ekki að slíta heimakonur frá sér. Valur leiddi 23-21 þegar skammt var eftir en Malaga náði að jafna bæði í 23-23 og 24-24 þegar innan við tvær mínútur voru eftir. Lokamínútan var æsispennandi. Malaga var með boltann og komst í 25-24 með frábæru marki þegar fimmtán sekúndur voru eftir en hornamaður liðsins fór þá inn úr þröngu færi og fann línumaninn galopinn fyrir miðjum teig. Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals tók leikhlé og skipulagði síðastu sókn liðsins. Henni lauk með marki frá Theu Imani Sturludóttur þegar fjórar sekúndur voru eftir og leiknum lauk því með 25-25 jafntefli. Á heimasíðu EHF kemur fram að Þórey Anna Ásgeirsdóttir hafi verið markahæst Valskvenna með sex mörk og Lovísa Thompson og Elín Rósa Magnúsdóttir skorað fimm mörk hvor. Það er því allt hnífjafnt fyrir síðari leikinn um næstu helgi en sigurvegari einvígisins fer í 8-liða úrslit keppninnar.
Valur Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira