Afsala sér milljörðum í tekjur til að baktryggja losunarskuldbindingar Kjartan Kjartansson skrifar 15. janúar 2025 07:00 Eitt af fyrstu verkum Jóhanns Páls Jóhannssonar sem loftslagsráðherra í desember var að ákveða að Ísland héldi áfram að nýta sér heimild til að taka frá losunarheimildir stóriðju og nýta til að mæta skuldbindingum ríkisins um samdrátt í losun. Vísir/Vilhelm Sérfræðingar í loftslagsmálum setja spurningarmerki við að íslensk stjórnvöld kjósi að lækka skuldbindingar sínar í losunarmálum eins mikið og reglur leyfa. Þau hafi þegar afsalað sér milljörðum króna í tekjur af losunarheimildum til þess að baktryggja sig.
Jóhann Páll Jóhannsson, nýr umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ákvað fyrir áramót að íslensk stjórnvöld ætluðu að halda áfram að nýta sér sveigjanleika í Evrópureglum sem heimila notkun á losunarheimildum stóriðju til þess að mæta skuldbindingum ríkisins. Íslensk stjórnvöld ákváðu árið 2019 að nýta sér sveigjanleikann fyrir fyrra tímabili Parísarsamkomulagsins 2020-2025 en ákvörðun ráðherra nú varðar seinna tímabilið 2026-2030. Sveigjanleikinn þýðir að ef íslenskum stjórnvöldum mistekst að ná skuldbindingum sínum um samdrátt í svonefndri samfélagslosun gróðurhúsalofttegunda gagnvart Parísarsamkomulaginu og Evrópusambandinu geta þau nýtt losunarheimildir úr svonefndu ETS-viðskiptakerfi með losunarheimildir til þess að stemma af bókhaldið. Vegasamgöngur, landbúnaðar og sjávarútvegur eru á meðal þess sem fellur undir samfélagslosun. ETS-viðskiptakerfið nær yfir losun frá stóriðju, alþjóðaflugi og siglingum. Íslensk stjórnvöld hafa haft umtalsverðar tekjur af sölu þeirra undanfarin ár. Afsalað sér sjö milljörðum króna í tekjur nú þegar Tveir sérfræðingar í loftslagsmálum benda á í aðsendri grein á Vísi að íslensk stjórnvöld hafi þegar afsalað sér um sjö milljörðum króna í tekjur af sölu ETS-heimilda með því að nýta sveigjanleikaákvæðið á fyrra tímabili Parísarsamkomulagsins. Þeir fjármunir hefðu getað nýst til fjármögnunar loftslagsaðgerða og stuðlað að samdrætti samfélagslosunar til framtíðar. „Hvað réttlætir að nota þá ekki núna og njóta síðan ávinningsins til framtíðar í staðinn fyrir að fara of hægt í aðgerðir, meðal annars vegna þess að það eru ekki til nægir fjármunir, til þess að hafa borð fyrir báru seinna og vera með belti og axlabönd og taka enga sénsa á framúrkeyslu?“ segir Hrafnhildur Bragadóttir, annar höfundur greinarinnar í samtali við Vísi. Þetta skjóti sérstaklega skökku við í ljósi loftslagsmarkmiða ríkisstjórnarflokkanna sem stefni á enn meiri samdrátt í losun en líklegt er að Ísland verði skuldbundið til í samfloti sínu með Evrópusambandinu og Noregi hvað varðar Parísarsamkomulagið. „Ljóst er því að ákvörðun um nýtingu ETS-sveigjanleikans gengur í þveröfuga átt við stefnu þessara flokka, enda miðar hún sem fyrr segir að því að létta á þrýstingi um að draga úr samfélagslosun á Íslandi,“ skrifa þær Hrafnhildur og Birna Sigrún Hallsdóttir í grein sinni. Lágmarka fjárhagsáhættu ríkisins Þó að ekki sé hægt að selja þær ETS-heimildir sem stjórnvöld ákveða að taka frá á grundvelli sveigjanleikaákvæðisins segja þær Hrafnhildur og Birna Sigrún að hægt sé að nýta eða selja afgang af svonefndum landsheimildum Íslands síðar. „Af þessu má helst draga þá ályktun að með áframhaldandi nýtingu sveigjanleikans sé verið að safna í eins konar varasjóð landsheimilda fyrir samfélagslosun Íslands á komandi árum. Slík nálgun gefur að okkar mati til kynna að nýr umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafi takmarkaða trú á þeim aðgerðum sem settar voru fram í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í tíð fyrri ríkisstjórnar,“ segir í grein þeirra. Þegar ráðuneytið tilkynnti um ákvörðun ráðherra í síðustu viku var vísað til tillögu stýrihóps og að hún fæli í sér að fjárhagsáhætta ríkisins vegna losunar yrði lágmörkuð. Þrátt fyrir að stýrihópurinn hefði bent á að nýting sveigjanleikaákvæðisins hefði bein áhrif á fjármál ríkisins með tekjutapi gæti Ísland lent í þeirri stöðu að þurfa að kaupa losunarheimildir ef það nær ekki markmiðum sínum um samfélagslosun. „Slíku fylgir umtalsverð óvissa, þar sem hvorki liggur fyrir mögulegt framboð né verð á slíkum losunarheimildum,“ sagði í tilkynningunni. Íslensk stjórnvöld keyptu losunarheimildir af Slóvakíu fyrir 350 milljónir króna vegna þess að losun Íslands fór umfram heimildir Kýótó-bókunarinnar, forvera Parísarsamkomulagsins, árið 2023.
Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Rekstur hins opinbera Mest lesið Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Viðskipti innlent Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Atvinnulíf Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Viðskipti innlent Framsækin og ört vaxandi rafmagnsverkfræðistofa Framúrskarandi fyrirtæki Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Viðskipti erlent Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Viðskipti innlent Valhöll seld en óvíst með framhaldið Viðskipti innlent Fjögur ráðin til Cirkus auglýsingastofu Viðskipti innlent Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Fjögur ráðin til Cirkus auglýsingastofu Valhöll seld en óvíst með framhaldið Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð „Laxaveisla á Íslandi“ og útlit fyrir umtalsverðan vöxt í framleiðslu Spá því að verðbólga fari strax undir fimm prósent Tollgæslustjóri hafi lofað MS tollflokkuninni umdeildu Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Stjórn vill greiða fimmtán milljarða í arð Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Sjá meira