Handbolti

Danir skoruðu 47 mörk í fyrsta leik sínum á HM

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mathias Gidsel var markahæstur allra á vellinum.
Mathias Gidsel var markahæstur allra á vellinum. Soeren Stache/Getty Images

Það verður ekki annað sagt en Danmörk, ríkjandi heimsmeistari, byrji HM karla í handbolta af krafti. Liðið skoraði 47 mörk gegn annars slöku liði Alsír.

Danmörk og Alsír eru í B-riðli ásamt Ítalíu og Túnis. Síðastnefndu tvö liðin mættust fyrr í dag og unnu Ítalir góðan sigur. Danir hirtu hins vegar toppsætið eftir ótrúlegan 25 marka sigur á Alsír, lokatölur 47-22.

Mathias Gidsel skoraði 10 mörk í liði Danmerkur, Emil Jakobsen skoraði 8 og Simon Pytlick skoraði 6 mörk. Í liði Alsír var Ayoub Abdi markahæstur með 6 mörk.

Í D-riðli vann Austurríki góðan sigur á Kúveit, lokatölur 37-26.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×