Innherji

Fjár­magn streymdi í hluta­bréfa­sjóði eftir viðsnúning á mörkuðum í lok ársins

Hörður Ægisson skrifar
Úrvalsvísitalan er núna nálægt sínu hæsta gildi frá því í júlí 2022 eftir að hafa hækkað um nærri 30 prósent frá miðjum septembermánuði í fyrra samhliða því að verðbólgan fór að síga niður og væntingar sköpuðust um vaxtarlækkanir Seðlabankans.
Úrvalsvísitalan er núna nálægt sínu hæsta gildi frá því í júlí 2022 eftir að hafa hækkað um nærri 30 prósent frá miðjum septembermánuði í fyrra samhliða því að verðbólgan fór að síga niður og væntingar sköpuðust um vaxtarlækkanir Seðlabankans. VÍSIR/VILHELM

Eftir nánast samfellt útflæði frá innrás Rússa í Úkraínu eru fjárfestar farnir að beina fjármagni sínu á nýjan leik í hlutabréfasjóði og eftir viðsnúning á mörkuðum undanfarna mánuði reyndist vera hreint innflæði í slíka sjóði á öllu árinu í fyrra í fyrsta sinn frá 2021. Með auknu innflæði og verðhækkunum í Kauphöllinni hefur umfang hlutabréfasjóða ekki verið meira í um þrjátíu mánuði.


Tengdar fréttir

Markaðurinn nálgast jafn­vægi eftir langt tíma­bil þar sem öll félög voru vanmetin

Eftir langt tímabil þar sem flest félög í Kauphöllinni voru undirverðlögð, ásamt því að vera mun ódýrari í samanburði við verðkennitölur erlendis, þá virðist íslenski hlutabréfamarkaðurinn núna vera að komast í jafnvægi eftir hraustlegar verðhækkanir flestra félaga síðustu mánuði, að sögn hlutabréfagreinanda. Það eru hins vegar blikur samhliða hratt versnandi samkeppnishæfni landsins sem gæti einkum bitnað á mannaflsfrekum greinum sem eru í erlendri samkeppni.

Hluta­bréfa­sjóðir í varnar­bar­áttu á árinu og á­vöxtunin oftast undir vísi­tölum

Stærstu innlendu hlutabréfasjóðirnir hafa háð samfellda varnarbaráttu í að verða þrjú ár þar sem þeir hafa skroppið saman um liðlega fjörutíu prósent samhliða innlausnum fjárfesta og verðlækkunum á markaði. Ávöxtun flestra sjóða það sem af er þessu ári er undir helstu viðmiðunarvísitölum, einkum hjá þeim sem hafa veðjað stórt á Alvotech, en ólíkt keppinautum sínum reyndist vera umtalsvert innflæði í flaggskipssjóð Kviku eignastýringar á fyrri árshelmingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×