Innlent

Fjór­tán metra hvalur í Guðlaugs­vík

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögreglan tilkynnti hvalrekann víða.
Lögreglan tilkynnti hvalrekann víða. Mynd/Höskuldur B. Erlingsson

Fjórtán metra hvalur fannst í Guðlaugsvík á Ströndum í upphafi þessarar viku. Í tilkynningu Lögreglunnar á Norðvesturlandi segir að um sé að ræða búrhval og að til samanburðar megi áætla að hvalurinn sé jafnlangur og þrjár Tesla Y bifreiðar eða sjö Cleveland þriggja sæta sófar lagðir samsíða hvalnum.

Lögreglan tilkynnti hvalrekann til heilbrigðiseftirlitsins, Matvælastofnunar, Hafrannsóknarstofnunar, Umhverfis- og orkustofnunar, Náttúrustofu og sveitarfélagsins Húnaþings vestra.

Um er að ræða tarf.Mynd/Höskuldur B. Erlingsson

Þá kemur einnig fram að um sé að ræða tarf og að þekkt sé að tarfar yfirgefa fjölskyldu sína árstíðabundið til kaldari svæða í fæðuleit. Mikill kynjamunur er á stærð búrhvala, sem mun vera óvenjulegt meðal hvala. Tarfarnir geta náð yfir 18 metra lengd og yfir 40 tonn en kýrnar allt að 12 metrar að lengd og 13 tonn að þyngd

Á myndinni má sjá hversu stór hvalurinn er.Mynd/Höskuldur B. Erlingsson

„Áður fyrr þótt hvalreki mikill búbót og sagnir eru til af hvalreka sem bjargaði heilu sveitunum frá hungursneið í erfiðum árum. Þaðan kemur líklega merking orðsins hvalreki á íslensku sem kærkomið happ eða óvæntur fengur. Þrátt fyrir fagra skepnu og mikilfengleika hennar skal ósagt látið hvort sveitungar í Guðlaugsvík líti á hræið sem happafeng en það heyrir sjálfsagt til undantekninga að ábúendur nýti hvalhræ nú á dögum. Sjái náttúran ekki um að „urða“ hræið getur verið æði flókið að koma því í viðeigandi farveg,“ segir að lokum í tilkynningu lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×