Eins og margir vita hefur verið leikið eftir nýju fyrirkomulagi í Meistaradeildinni á yfirstandandi tímabili. Í stað hinnar hefðbundnu riðlakeppni með fjögurra liða riðlum, sem við þekkjum frá fyrri tíð, hafa þrjátíu og sex lið keppt í einfaldri deildarkeppni þar sem að hvert lið leikur átta leiki gegn átta mismunandi andstæðingum, fjóra leiki á heimavelli og sömuleiðis fjóra á útivelli.
Efstu átta lið deildarinnar tryggja sér beint sæti í sextán liða úrslitunum. Liðin í níunda til og með tuttugasta og fjórða sæti fara í umspil um sæti í sextán liða úrslitunum, tveggja leikja einvígi. Liðin fyrir neðan tuttugasta og fjórða sæti ljúka keppni eftir lokaumferð deildarkeppninnar.
Tvö lið örugg í sextán liða úrslit
Mikil spenna ríkir fyrir lokaumferð kvöldsins þar sem að leikirnir átján hefjast allir klukkan átta á íslenskum tíma. Aðeins tvö lið eru örugg með sæti í sextán liða úrslitunum. Það eru efstu tvö lið deildarinnar fyrir lokaumferð deildarkeppninnar: Liverpool og Barcelona.
Sextán lið eru örugg með sæti í Meistaradeildinni fram yfir deildarkeppnina og fara því annað hvort beint í sextán liða úrslitin eða í umspil um sæti í sextán liða úrslitum. Þau lið eru:
Arsenal (England), Inter Milan (Ítalía), Atletico Madrid (Spánn), AC Milan (Ítalía), Atalanta (Ítalía), Bayer Leverkusen (Þýskaland), Aston Villa (England), Mónakó (Frakkland), Feyenoord (Holland), Lille (Frakkland), Brest (Frakkland), Borussia Dortmund (Þýskaland), Bayern Munchen (Þýskaland), Real Madrid (Spánn), Juventus (Juventus) og Celtic (Skotland)
Níu lið eru enn ekki örugg með sæti í Meistaradeildinni fram yfir deildarkeppnina í annað hvort sextán liða úrslitunum eða umspili fyrir þau. Það eru eftirfarandi:
PSV (Holland), Club Brugge (Belgía), Benfica (Portúgal), PSG (Frakkland), Sporting Lisbon (Portúgal), Stuttgart (Þýskaland), Manchester City (England), Dinamo Zagreb (Króatía), Shakhtar Donetsk (Úkraína)
Neðstu níu lið deildarinnar sem stendur eru nú þegar fallin úr leik, þau lið eru:
Young Boys (Sviss), Slovan Bratislava (Slóvakía), Salzburg (Austurríki), Sturm Graz (Austurríki), FK Crvena Zvezda (Serbía), Girona (Spánn), RB Leipzig (Þýskaland), Sparta Prag (Tékkland), Bologna (Ítalía)
Hér má svo sjá leiki kvöldsins í lokaumferðinni. Af leikjunum átján má segja að eitthvað sé undir í sextán þeirra, aðeins viðureignir Young Boys og Crvena Zvezda sem og Sturm Graz og RB Leipzig eru innbyrðisviðureignir liða sem eiga nú þegar engan möguleika á sæti í sextán liða úrslitunum eða umspilinu og þar með er ekkert undir fyrir þau lið:
Lokaumferðin:
• Aston Villa (9. sæti) vs Celtic (18.sæti)
• Barcelona (2.sæti) vs Atalanta (7.sæti)
• Bayer Leverkusen (8.sæti) vs Sparta Prague (29.sæti)
• Bayern Munich (15.sæti) vs Slovan Bratislava (35.sæti)
• Borussia Dortmund (14.sæti) vs Shakhtar Donetsk (27.sæti)
• Brest (13.sæti) vs Real Madrid (16.sæti)
• Dinamo Zagreb (26.sæti) vs Milan (6.sæti)
• Girona (31.sæti) vs Arsenal (3.sæti)
• Internazionale (4.sæti) vs Monaco (10.sæti)
• Juventus (17.sæti) vs Benfica (21.sæti)
• Lille (12.sæti) vs Feyenoord (11sæti)
• Manchester City (25.sæti) vs Club Brugge (20.sæti)
• PSV (19.sæti) vs Liverpool (1.sæti)
• Red Bull Salzburg (34.sæti) vs Atlético Madrid (5.sæti)
• Sturm Graz (33.sæti) vs RB Leipzig (30.sæti)
• Sporting CP (23.sæti) vs Bologna (28.sæti)
• VfB Stuttgart (24.sæti) vs Paris Saint-Germain (22.sæti)
• Young Boys (36.sæti) vs Crvena zvezda (32.sæti)
Baráttan um beint sæti í sextán liða úrslitin (Topp átta):
Það gæti margt breyst varðandi það hvaða lið tryggja sér eitt af efstu átta sætum deildarinnar en þar eru aðeins topp tvö lið deildarinnar, Liverpool og Barcelona, sem hafa nú þegar gulltryggt sér eitt af topp átta sætunum og þar með farmiða í sextán liða úrslitin. Það skýrist í kvöld hvort þessara liða endar deildarkeppnina á toppnum.
![](https://www.visir.is/i/E74572FAC6A060FCF38F593C7F476957416962A6175914304F34D9AEF8B540FD_713x0.jpg)
Arsenal er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum en gulltryggir sig áfram með að minnsta kosti jafntefli gegn Girona á Spáni í kvöld en þó ber þess að geta að að sökum mjög svo hagstæðrar markatölu og þeirrar staðreyndar að núverandi lið í áttunda sæti er með þremur stigum minna en lærisveinar Arteta eru allar líkur á því að liðið sé samt öruggt með sæti í átta liða úrslitum þrátt fyrir að það tapi í kvöld.
Hvað önnur lið í topp átta sætum deildarinnar varðar eru það Inter Milan, Atletico Madrid, Bayer Leverkusen AC Milan sem eiga hvað mestan tölfræðilegan möguleika samkvæmt Opta á að tryggja sér eitt af topp átta sætunum. Inter Milan nægir jafntefli gegn Mónakó til þess að gera það á meðan að Atletico Madrid og AC Milan gætu þurft sigur til þess að verða sér út um beinan farmiða í sextán liða úrslitin.
Bayer Leverkusen hangir í áttunda sætinu á markatölu sem stendur og sigur gegn Spörtu Prag í kvöld ætti að fara langt með að tryggja liðinu eitt af efstu átta sætunum. Á meðan hanga bestu vonir Aston Villa í níunda sætinu á því að liðið klári sitt gegn Celtic á heimavelli og að Atalanta tapi stigum gegn Barcelona á sama tíma.
![](https://www.visir.is/i/CB573475FF062D2A88C2AF88DFDF0928163FCF463D1E3A0E4A21E78A5F268A99_713x0.jpg)
Lið neðar í töflunni sem eiga enn tölfræðilegan möguleika, sem er þó í sumum tilfellum nær óhugsanlegur, á að ná í eitt af topp átta sætunum eru eftirfarandi: Mónakó (Frakkland), Feyenoord (Holland), Lille (Frakkland), Brest (Frakkland), Borussia Dortmund (Þýskaland), Bayern Munchen (Þýskaland), Real Madrid (Spánn), Juventus (Ítalía), Celtic (Skotland), PSV Eindhoven (Holland), Club Brugge (Belgía).
Af þessum liðum eru lið Lille, með íslenska landsliðsmanninn Hákon Arnar Haraldsson innanborðs, talið líklegast, samkvæmt útreikningum tölfræðiveitunnar OPTA, til þess að geta mögulega skotið sér í eitt af topp átta sætunum. Lille tekur á móti Feyenoord í kvöld en liðin sitja í tólfta og þrettánda sæti með þrettán stig. Lille myndi þurfa sigur gegn Feyenoord sem og treysta á að önnur úrslit falli sér í vil.
Baráttan um umspilssæti (9. – 24.sæti) - City í hættu
Flestra augu verða á Manchester City í kvöld. Liðinu hefur gengið herfilega hingað til í Meistaradeildinni. Manchester City er sem stendur í 25.sæti Meistaradeildarinnar með átta stig og þarf að vinna Club Brugge á heimavelli í kvöld til þess að tryggja sér sæti í umspili fyrir sextán liða úrslit deildarinnar.
![](https://www.visir.is/i/6D1100E8276AAF241FF1F69673BB8848667253164D13341745B51D374BC083B1_713x0.jpg)
Allt annað en sigur sér til þess að Manchester City fellur úr leik. Sigur gulltryggir sömuleiðis sæti liðsins í umspilinu þar sem að með sigri á Club Brugge færi Manchester City alltaf yfir belgíska liðið sem er sem stendur í 20.sæti með þremur stigum meira en Manchester City en verri markatölu.
Það er þýska liðið Stuttgart sem situr í síðasta umspilssætinu fyrir lokaumferðina (24.sæti) og í kvöld taka þeir þýsku á móti franska stórliðinu Paris Saint-Germain (22.sæti). Stuttgart er með tveggja stiga forskot á liðin fyrir neðan sig en gæti sloppið með tapi í kvöld fari svo að bæði Manchester City og Dinamo Zagreb tapi stigum. Jafntefli gæti nægt þeim en sigur gerir það svo sannarlega. Á sama tíma nægir PSG jafntefli til að tryggja sér umsspilssæti en fari allt á versta veg gæti liðið fallið úr leik.
Meistaradeildarmessan, í umsjón Guðmundar Benediktssonar, hefst klukkan hálf átta á Stöð 2 Sport 2 í kvöld.