Lífið

Tóku hús í gegn út á Sel­tjarnar­nesi og settu upp hjónasvítu í bíl­skúrnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Camilla Rut og Valgeir hafa komið sér einstaklega vel fyrir út á Nesi.
Camilla Rut og Valgeir hafa komið sér einstaklega vel fyrir út á Nesi.

Þau Camilla Rut Rúnarsdóttir, markaðsstjóri Hopp, og Valgeir Gunnlaugsson, pítsabakari og eigandi pizza 107, tóku parhús sitt á Seltjarnarnesinu í gegn á frá a-ö en Sindri Sindrason leit við í síðasta þætti af Heimsókn.

Þau koma bæði úr fyrra sambandi og á Camilla tvö börn og Valli eitt. Þetta er því fimm manna fjölskylda. Valgeir átti húsið fyrir sambandið en það má með sanni segja að það sé í dag gjörbreytt.

Framkvæmdirnar tóku í heildina eitt og hálft á en til að fá enn meira pláss í þessu 140 fermetra húsi var ákveðið að breyta bílskúrnum í hjónasvítu sem heppnaðist sannarlega vel. Þar má meðal annars finna japanskt klósett sem hafði alltaf verið draumur Valla að eignast.

Hér að neðan sjá brot úr síðasta þætti af Heimsókn sem er á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldum.

Klippa: Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.