Lífið samstarf

Hátindar Ör­æfa­jökuls að vori

Ferðafélag Íslands og Páll Guðmundsson
Jöklagöngur á hæstu tinda Öræfjajökuls geta tekið 12 – 15 klst og því er mikilvægt að vera í góðu líkamlegu formi og með allan réttan búnað til ferðarinnar.
Jöklagöngur á hæstu tinda Öræfjajökuls geta tekið 12 – 15 klst og því er mikilvægt að vera í góðu líkamlegu formi og með allan réttan búnað til ferðarinnar. Myndabanki FÍ

Fjallgöngur á hæstu tinda Öræfajökuls á vordögum hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum. Um tíma má segja að það hafi verið í tísku að ganga á Hvannadalshnúk og stundum var fólk að taka slíka ákvörðun með skömmum fyrirvara. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands skrifar um mikilvægi þess að huga að undirbúningi og þjálfun tímanlega fyrir krefjandi jökulgöngur. 

Algengast er að ganga á jökulinn í maí þegar dagarnir eru langir og bjartir, veðrið orðið betra og oft snjór í sprungum. Jöklagöngur á hæstu tinda Öræfjajökuls geta tekið 12 – 15 klst og því er mikilvægt að vera í góðu líkamlegu formi og með allan réttan búnað til ferðarinnar. Yfirleitt gengur fólk á jökulinn í fylgd með fararstjórum í ferðafélögum eða ferðaþjónustufyrirtækjum. Hvannadalshnúkur, Sveinstindur, Rótarfjallshnúkur og Dyrhamar hafa í gegnum tíðina verið vinsælir tindar að ganga á. Norðar á jöklinum eru Hrútsfjallstindar og Miðfellstindur sem einnig hafa verið vinsælir tindar að ganga á.

Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.Myndabanki FÍ

Ferðatilhögun

Ferðatilhögun fyrir göngu á Hvannadalshnúk er yfirleitt með þeim hætti að þátttakendur koma á eigin bílum í Skaftafell eða Öræfasveit en gangan hefst yfirleitt við bílastæðið við Sandfell snemma að morgni göngudags, út frá veðurspá. Þaðan fetar hópurinn sig upp Sandfellsheiði. Við jökulrönd í um 1100 metra hæð er hópnum skipt í minni hópa sem ganga eftir það bundnir saman í línu í klifurbeltum. Fremstur í hverri línu fer fararstjóri / fjallaleiðsögumaður. 

Langabrekka frá jökulrönd og upp á öskjubrún er andlega krefjandi en um leið tilvalin til að fara í innri íhugun og hugleiða og hverfa inn í sjálfan sig. Þegar komið er upp á öskjubrún liggur leiðin þvert yfir öskjuna til norðurs eftir sléttri snjóbreiðu fyrir austan sprungusveim Virkisjökuls sem fellur fram úr öskjunni. Á síðari árum hafa fleiri og fleiri haldið lengra inn á sléttuna áður en leiðin er þveruð yfir á Hnúkinn. Á þessum slóðum mun jökullinn vera um 500 metra þykkur niður á öskjubotn.

Í norðurbarmi öskjunnar rís svo Hvannadalshnúkur og er nokkuð bratt upp á hnúkinn sjálfan og þar reynir á notkun brodda og axar og því þurfa þátttakendur að kunna noktun þessa mikilvæga öryggisbúnaðar.

Góð ráð fyrir krefjandi jöklagöngu:

Gott er að hvíla í nokkra daga fyrir gönguna, borða og sofa vel. Best er að reyna að halda streitu í lágmarki og vera eins vel upplagður og hægt er. Mikilvægt er að drekka vel af vatni áður en lagt er af stað í gönguna. Einnig er mikilvægt að borða og drekka í öllum stoppum til að viðhalda orkubúskapnum. Þá er mikilvægt að bera á sig sólaráburð reglulega allan daginn og nota sólgleraugu. 

Gott er að setja íþróttaplástur á hæla fyrir gönguna til að forðast hælsæri. Mikilvægt er að vera ekki of mikið klæddur í einkum í upphafi göngu, og frekar klæða sig í föt ef á þarf að halda frekar en að svitna mikið í upphafi. Mikilvægt er að taka eingöngu það sem maður þarf að nota þegar pakkað er í bakpokann. 

Miklu máli að hvíla fyrir ferð, sofa vel, borða vel og drekka.Myndabanki FÍ

Góðir fararstjórar ganga á mjög jöfnum og rólegum hraða en það skilar bestum árangri. Eins er gott að stoppa sjaldan og stutt en nýta stoppin vel til að gera allt sem þarf að gera, borða, drekka, pissa, setja á sig plástur og bera á sig sóláburð.

Algengt er að göngufólk finni fyrir streitu fyrir ferð og í upphafi göngu og gott að eyða streitunni eins og hægt er með góðum undirbúningi. Þar skiptir miklu máli að hvíla fyrir ferð, sofa vel, borða vel og drekka, yfirfara allan búnað og vera með allt til staðar í bakpokanum. 

Algengt er að klæða sig of mikið í upphafi ferðar en betra að kaldstarta sem kallað er og vera minna klædd og með föt í bakpokanum til að fara í. Mikill sviti, hár hjartsláttur og hröð öndun, gengið of hratt í byrjun getur dregið mjög úr ánægju göngufólks og jafnvel komin upp mikil vanlíðan. Þetta er allt hægt að forðast með góðum undirbúningi. 

Besta þjálfunin fyrir jöklagöngur er að stunda fjallgöngur. Fjallgöngur einu sinni til tvisvar í viku 2 – 3 mánuði fyrir jöklaferð er almennt nægur undirbúningur samhliða almennri líkamsrækt.

Réttur búnaður er lykilþáttur í jökulgöngumMyndabanki FÍ

Öryggismál og helsti búnaður

Í öllum jöklagöngum er mikilvægt að tryggja hámarks öryggi. Huga þarf vel að öryggismálum fyrir ferð og við upphaf ferðar. Engin ætti að fara í krefjandi jöklagöngur nema að hafa til þess þekkkingu, reynslu og réttan búnað og eða fylgd með leiðsögufólki eða fararstjórum.

Helsti útbúnaður sem þarf til jöklagöngu eru skór með góðum sóla, mannbroddar, klifurbelti, ísöxi, sólgleraugu, sólaráburður, skjólgóður fatnaður í bakpoka og nesti.

Drykkir og nesti:

Drykkir 2 til 3 lítrar. Mælt er með einum lítra af heitum drykk, t.d. kakó eða te. Aðrir drykkir geta t.d. verið orkudrykkur eða ávaxtasafi.

Nesti getur t.d. verið flatkökur með hangikjöti eða samlokur , einn kexpakki og súkkulaðistykki, og gott er að hafa eitthvað handhægt til að maula og halda við orkubyrgðum.

Útbúnaður fyrir gönguna:

  • Vandaðir gönguskór með góðum sóla.
  • Bakpoki (35 til 45 lítrar)
  • Mannbroddar
  • Klifurbelti og læst karabína
  • Ísöxi (gönguöxi, ca. 60-70 cm.)
  • Sólgleraugu og skíðagleraugu
  • Sóláburður og varasalvi
  • Jakki og buxur úr vindheldu öndunarefni
  • Flíspeysa, göngubuxur og síð nærföt
  • Aukaflíspeysa eða létt dúnúlpa
  • Húfa, vettlingar og göngusokkar
  • Legghlífar
  • Göngustafir
  • Myndavél
  • Hælsærisplástur

Höfundur er framkvæmastjóri Ferðafélags Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.