Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. febrúar 2025 16:01 Karen Ösp og Petra voru að opna samsýninguna Fornar slóðir. Aðsend „Við uppgötvuðum listina svolítið saman,“ segja listakonurnar Karen Ösp og Petra. Þær eru æskuvinkonur frá því þær voru saman í Austurbæjarskóla og hafa báðar lagt land undir fót og sint listinni í Bandaríkjunum og víða um Evrópu. Um helgina opnuðu stöllurnar svo samsýninguna „Fornar slóðir“ í SÍM gallerí í Reykjavík.
Karen Ösp og Petra eru báðar fæddar árið 1992 og hafa verið vinkonur frá því þær muna eftir sér. „Í æsku blönduðum við saman nornaseiði og drullumalli úti í garði. Við stigum svo okkar fyrstu skref í listinni saman þegar við fórum alltaf saman í tíma hjá Myndlistarskóla Reykjavíkur eftir skóla og höfum báðar haft mikinn áhuga á list frá ungum aldri.“ Karen Ösp var svo fyrri til að flytja til Bandaríkjanna og endaði á að leggja stund á myndlist í háskólanámi hjá listaháskólanum MICA. „Stuttu seinna kom Petra líka út og lærði myndlist hjá Hunter í New York. Þá byrjaði ég að heimsækja hana til New York og við vorum duglegar að skoða list saman og heimsækja söfn og gallerí,“ segir Karen Ösp og bætir við að hún hafi sömuleiðis heimsótt vinkonu sína þegar Petra fór í meistaranám í hinn virta háskóla Yale. Petra, Karen og Laufey Böðvarsdóttir í stuði á sýningaropnun.Aðsend Útgangspunktur sýningarinnar er að sögn vinkvennanna sá að þær leituðu að jarðtengingu. Þær höfðu búið í sitt hvoru landinu í nokkur ár þangað til leið þeirra lá aftur til Reykjavíkur á æskuslóðirnar. „Við höfum alla tíð verið mjög góðar vinkonur og tengst mikið í gegnum listina en við uppgötvuðum listina svolítið saman. Vinkona okkar spurði okkur einhvern tíma hvort við værum ekki að huga að því að vinna eitthvað saman og þó við í rauninni gerum frekar ólíka list þá ákváðum við að finna miðpunkt og slá saman í sýningu. Við fórum báðar út fyrir þægindarammann og ákváðum að gera list út frá fyrir fram ákveðinni litapallettu sem samanstendur af jarðbundnum listum. Ég hef bara málað blá verk síðan 2019 þannig þetta var öðruvísi og skemmtilegt. Við erum ánægðar að hafa fengið að vinna saman og það er heiður fyrir mig að fá að sýna með Petru minni æskuvinkonu og listakonu,“ segir Karen brosandi. View this post on Instagram A post shared by Karen Ösp Pálsdóttir (@kronosp) Petra vinnur með silfursmíði, útsaum og annað hefðbundið handverk. Hún finnur innblástur úr gömlum bókum, blöðum, fornminjum og minningum. „Það er þó mikilvægt að verkin komi ekki fram sem draugar eða uppvakningar heldur spretti upp, fersk og ung, úr þessum morkna jarðvegi,“ segir í fréttatilkynningu. Þar kemur sömuleiðis fram að Karen hefur komið upp vinnustofu á æskuheimili sínu þar sem hún er umkringd gömlum hlutum. Hún nýtur þess að blása í þá nýju lífi í gegnum málverk sem einblína á smáatriði eins og mynstur sem endurvekja æskuminningar. Karen málar olíumálverk en hefur einnig verið að fikra sig áfram með því að hanna þrívíddarmódel og gera út frá þeim skúlptúra sem eiga í samtali við málverkin. Petra og Karen vinna verkin á sýningunni í sitt hvoru lagi en kveikjan að verkunum er oft sú sama og vináttan er þeim hugleikin. „Þær eru undir miklum áhrifum frá hvor annarri, enda mótaðar úr sama leirnum.“ Hér má sjá myndir frá opnuninni: Stöllurnar í góðum félagsskap.Aðsend Þessi skáluðu fyrir listakonunum.Aðsend Listakonurnar voru í skýjunum með opnunina.Aðsend Sverrir Páll lét sig ekki vanta.Aðsend Petra brosti sínu breiðasta.Aðsend Listunnendur komu saman í SÍM.Aðsend Spjallað um listina.Aðsend Þórður Hans, Arna Halldórs og Eyja skemmtu sér vel.Aðsend Knús!Aðsend Gestir lesa sýningarskrána.Aðsend Sýningin stendur opin í SÍM Gallery.Aðsend Í góðra vina hópi meðal annars með Kristínu Sverris og Tómasi Ken.Aðsend Gestir skoðuðu verkin gaumgæfilega.Aðsend Listakonan Kristín Helga Ríkharðsdóttir lét sig ekki vanta.Aðsend Karen og Petra fóru báðar út fyrir þægindarammann og sóttu innblástur í jarðliti.Aðsend Margt var um manninn.Aðsend Sjálfsmynd af Kareni Ösp í grænu og gulu.Aðsend Líf og fjör í gegnum gluggann.Aðsend
Sýningar á Íslandi Myndlist Menning Mest lesið Mætti dópaður í Kastljós og laug blákalt að alþjóð Lífið Best klæddu, flippuðustu og fáklæddustu á Grammy Tíska og hönnun Svaraði kallinu frá Ben Stiller Bíó og sjónvarp Mætti svo gott sem nakin á rauða dregilinn Lífið Var tilbúinn með tapræðu í matarboðinu Lífið Biðu í tvo tíma eftir „McDonalds“ borgurum sem strönduðu í tollinum Lífið Frumsýning á Vísi: Stórbrotinn sigurvilji Sigurbjörns á hvíta tjaldið Lífið Iðjuþjálfi á Nesinu fer sínar eigin leiðir í skólamat Lífið Stjörnulífið: Fáklæddar, í hátísku og Palli rúmliggjandi Lífið Seldist upp á einni mínútu Lífið Fleiri fréttir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira