Kryddbrauðið sem kom viðræðunum af stað Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. febrúar 2025 19:30 Heiða bakaði kryddbrauð fyrir oddvita hinna flokkanna fjögurra og vakti það mikla lukku. Oddvitar borgarstjórnarflokkanna fimm sem eru í meirihlutaviðræðum hafa verið kallaðir kryddpíurnar eftir að þær borðuð kryddbrauð heima hjá oddvita Samfylkingarinnar í gær. Hér má sjá uppskrift að kryddbrauðinu umtalaða.
Fréttamaður Stöðvar 2 náði tali af Líf Magneudóttur, oddvita Vinstri grænna og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Sósíalistaflokksins, eftir óformlegan fund oddvitanna heima hjá Heiðu Björgu í gær. „Heiða bakaði yndislegt kryddbrauð og lokkaði okkur til sín. Þannig ég veit ekkert hvað verður næst,“ sagði Líf Magneudóttir við fréttastofu. Þegar fréttamaður Rúv spurði síðan hvort hópurinn væri kominn með formlegt nafn eins og Valkyrjurnar svaraði Líf: „Kryddpíurnar!“ Kryddpíur og kryddbrauð Á næstunni munu því vafalaust spretta upp alls konar skrif og vangaveltur um það hver oddvitanna sé hvaða kryddpía. Það verður ekki gert hér en hins vegar leitaði fréttastofa til Heiðu Bjargar Hilmisdóttur til að forvitnast út í þetta kryddbrauð sem vakti svo mikla lukku. Að sögn Heiðu hentar kryddbrauðið fyrir öll, vegan sem ekki vegna, unga sem aldna. Hún bauð borgarstjórnarhópi Samfylkingarinnar líka upp kryddbrauðið og segir það hafa slegið jafnmikið í gegn þar og hjá oddvitunum. Hér fyrir neðan má sjá uppskriftina að kryddbrauði Heiðu og einfaldar leiðbeningar: Kryddbrauð 3 dl hveiti 3 dl haframjöl 1 ½ dl sykur 1 tsk. kanill ½ tsk. engifer 1 tsk. negull 1.tsk kakó 2 tsk. matarsódi 3 dl haframjólk Setjið þurrefni í skál og hrærið haframjólkina saman við með sleif. Hrærið öllu saman og setjið í eitt stórt eða tvö lítil smurð form. Bakið við 200°C fyrstu fimmtán mínútunar og svo lækka í 175°C og bakið í 25 mín. Nú geta lesendur Vísis bakað kryddbrauð og kannski líka hafið formlegar meirihlutaviðræður.
Uppskriftir Matur Samfylkingin Kökur og tertur Brauð Tengdar fréttir „Kryddpíur“ í formlegt samtal Fimm stjórnmálaflokkar hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um samstarf í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sendir fyrir hönd oddvita VG, Sósíalista, Pírata, Samfylkingar og Flokks fólksins. Ekkert hefur verið rætt um það enn hver yrði mögulegt borgarstjóraefni. 12. febrúar 2025 14:58 Mest lesið Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Lífið Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Lífið „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Lífið Ólafur Darri verður Þór Bíó og sjónvarp Djammaði með feðgunum Kára og Agli Lífið Sækir um skilnað frá Schneider Bíó og sjónvarp Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Tónlist Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry Lífið Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Lífið
„Kryddpíur“ í formlegt samtal Fimm stjórnmálaflokkar hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um samstarf í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sendir fyrir hönd oddvita VG, Sósíalista, Pírata, Samfylkingar og Flokks fólksins. Ekkert hefur verið rætt um það enn hver yrði mögulegt borgarstjóraefni. 12. febrúar 2025 14:58