Ómótstæðilegar Créme Brulée bollur með stökkum sykurhjúp Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 25. febrúar 2025 16:00 Linda segir að unnendur crème brûlée eftirréttarins ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með þessa bolluuppskrift. Bolludagurinn verður haldinn hátíðlegur mánudaginn 3. mars næstkomandi. Matgæðingurinn Linda Benediktsdóttir er auðvitað byrjuð að undirbúa herlegheitin og deilir hér girnilegri uppskrift að girnilegum vatnsdeigbollum með Créme brulée- fyllingu og stökkum sykurhjúp.
Linda segir að unnendur crème brûlée ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með þessa uppskrift: „Crème brûlée-ið er silkimjúkt og bragðgott, og toppurinn á bollunum er þakinn stökkum bræddum sykri sem brotnar og bráðnar í munninum þegar maður tekur bita.“ Créme brulée vatnsdeigsbollur Créme brulée fylling 650 ml mjólk 5 eggjarauður80 g sykur5 msk kornsterkja (maizena mjöl)1 tsk vanilludropar Aðferð: Hitið mjólk í stórum potti að suðu.Setjið egg, sykur og kornsterkju í hrærivélaskál og þeytið þar til samlagað. Hellið helmingnum af heitri mjólkinni út í eggjablönduna í mjórri bunu með hrærivélina í gangi. Hellið svo eggja+mjólkurblöndunni aftur ofan í pottinn og hitið rólega á sama tíma og þið hrærið stanslaust í pottinum þar til blandan verður þykk og dekkri á litinn. Þetta getur tekið allt að 5 mín.Hellið blöndunni í ílát og geymið inn í ísskáp þar til orðið kallt, allt að 2 klst. Ekki hafa áhyggjur ef blandan er smá kekkjótt, smellið henni bara í gegnum sigti.Útbúið vatnsdeigsbollurnar á meðan. Vatnsdeigsbollur 125 g smjör/smjörlíki1 msk sykur275 ml vatn170 g hveiti1 tsk lyftiduft½ tsk salt3-4 egg Aðferð: Kveikið á ofninum og stilltið á 180°C og blástur.Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökkvið svo undir pottinum.Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Látið standa í 5 mínútúr áður en deigið er sett í hrærivél.Setjið þrjú egg út í deigið, eitt íi einu og hrærið vel saman við. Þar sem að egg eru misstór er mismunandi hversu mikið þú þarft af síðiasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að það lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna, ekki leka út og verða flatt. Setjið seinasta eggið í litla skál og hrærið. Byrjið á því að setja 1 msk af egginu í einu út í deigið og hrærið vel á milli þar til þú ert komin með rétta áferð. Setjið deigið í sprautupoka eða notaðu matskeiðar til að útbúa bollurnar. Ein bolla eru tvær msk.Setjið smjörpappír á ofnplötu og gættu þess að hafa gott pláss á milli hverrar bollu þar sem þær stækka mikið í ofninum. Gott er að miða við að setja tólf bollur á hverja plötu. Bakið bollurnar í 20-25 mínútur en ekki opna ofninn fyrr en 20 mínútur eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og hversu blaut hún er innan í. Sykurtoppur 200 g sykur60 ml vatn1/8 tsk salt Aðferð: Setjið sykur, vatn og salt í pott, hitið á meðal hita þar til sykkurkornin hafa bráðnað og blandan orðin ljós gyllt, slökkvið þá undir pottinum.Stingið hverja bollu með kjötgaffli inn í hliðina og dýfið bollunni ofan í sykurinn þannig að toppurinn á bollunni hjúpist. Leggið bolluna á smjörpappír aftur. Passið að snerta ekki sykurinn og látið hann ekki leka á ykkur því hann er svakalega heitur. Látið sykurinn harðna. Samsetning Setjið créme brulée fyllinguna í sprautupoka.Stingið sprautupokanum inn í bollurnar á hliðinni þar sem bollurnar voru stungnar með kjötgafflinum og fyllið.
Bolludagur Uppskriftir Kökur og tertur Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Lífið samstarf Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Fleiri fréttir Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Sjá meira