Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Sindri Sverrisson skrifar 7. mars 2025 14:01 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir mundar pennann og skrifar undir samning við Víkinga. Víkingur Knattspyrnukonan Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er gengin í raðir Víkings sem þar með verður sjöunda íslenska félagið sem hún spilar fyrir. Víkingar eru í skýjunum enda Þórdís reynslumikill og öflugur leikmaður sem unnið hefur titla með þremur þessara liða.
Þórdís lék með yngri flokkum FH og Breiðabliks og hóf meistaraflokksferilinn með Blikum fyrir fimmtán árum. Hún lék einnig með Stjörnunni, Þór/KA, KR og aftur með Breiðabliki áður en hún kom til Vals þar sem hún spilaði síðast. Þá hefur hún einnig leikið með Alta og Kristianstad í Svíþjóð og með Apollon á Kýpur. Alls hefur Þórdís, sem er sóknarsinnaður miðjumaður, skorað þrjátíu mörk í 149 leikjum í efstu deild hér á landi. Hún skoraði til að mynda sjö mörk í deild og bikar árið 2022 þegar Valur varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Hún spilaði hins vegar ekkert árið 2023 eftir að hafa slitið krossband í hné en kom við sögu í samtals ellefu leikjum með bikarmeisturum Vals í fyrra. John Andrews er hæstánægður með að Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir verði með Víkingum í Bestu deildinni í sumar.Víkingur Þórdís, sem er 31 árs gömul, á að baki 2 A-landsleiki og 29 leiki fyrir yngri landslið Íslands en í þeim skoraði hún sjö mörk. „Þórdís er frábær fótboltamaður og er með töfra í fótunum, það er bara þannig. Við erum í skýjunum með að hafa fengið hana í hópinn okkar,“ segir John Andrews, þjálfari Víkinga, á vef félagsins. „Við höfum þekkst lengi og hún er leikmaður sem ég hef alltaf dáðst að og borið virðingu fyrir. Það eru til nokkrar tegundir af leiðtogum og á sinn hátt er Þórdís frábært dæmi um leikmann sem setur gott fordæmi fyrir öll sem í kringum hana eru. Jákvæð orka hennar og baráttuvilji er smitandi og hún er strax búin að mynda sterk tengsl í hópnum,“ segir John.
Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira