Breyta ekki því sem virkar Valur Páll Eiríksson skrifar 20. mars 2025 11:02 Makala Woods á að skora mörkin á Króknum í sumar. University of Kentucky Tindastóll hefur bætt við sig framherja fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna. Framherjanum Makala Woods er ætlað að leiða framlínu liðsins og tekur við keflinu af fyrrum skólafélaga.
Woods er 23 ára gömul og hefur verið iðin við markaskorun með Kentucky-háskóla vestanhafs. Hún var markahæst háskólaliðsins með ellefu mörk á liðnu tímabili. Woods kemur til með að fylla skarð Jordyn Rhodes sem var markahæst Tindastólsliðsins á síðustu leiktíð með tólf mörk í 21 leik. Tindastóll hafnaði í 8. sæti Bestu deildarinnar, fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið. Keflavík og Fylkir féllu niður í næst efstu deild. Woods er þriðji leikmaðurinn sem kemur frá Bandaríkjunum til Tindastóls í vetur. Áður samdi liðið við þýska miðjumanninn Nicolu Hauk, sem kom frá Nebraska-háskóla, og varnarmanninn Katherine Grace Pettet sem kom frá Pittsburgh. Sama húsnæði, sama starfsemi Woods kemur sömu leið og Rhodes en sú síðarnefnda kom einnig til Tindastóls úr Kentucky-háskólanum fyrir ári síðan. Það er því sama uppskrift hjá Stólunum sem treysta á samskonar framlag frá öðrum nema Kentucky-háskólans. Rhodes heillaði mjög síðasta sumar og fékk í gegn skipti til bikarmeistara Vals, en tilkynnt var um skipti hennar á Hlíðarenda í vikunni. Keppni í Bestu deild kvenna hefst 15. apríl næst komandi. Tindastóll mætir nýliðum FHL í fyrsta leik á Króknum degi síðar, 16. apríl.
Tindastóll Besta deild kvenna Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi Sjá meira