Skipstjóri Höddu hafi ekki gætt að sér Árni Sæberg skrifar 26. mars 2025 16:23 Longdawn í höfn í Vestmannaeyjum. Óskar P. Friðriksson Samverkandi þættir urðu til þess að fraktskipið Longdawn og tryllan Hadda rákust saman við Garðskaga í maí í fyrra. Skipstjóra Höddu bar að víkja fyrir skipinu og hann fylgist ekki nægilega vel með stefnu bátsins. Skipstjóri Longdawn var hins vegar drukkinn eða mjög drukkinn þegar áreksturinn varð og hefur hlotið dóm fyrir.
Þetta er niðurstaða Rannsóknarnefndar samgönguslysa, sem birti skýrslu um slysið í dag. Ítarlega hefur verið fjallað um slysið en það varð þann 16. maí í fyrra. Longdawn og Hadda rákust þá saman með þeim afleiðingum að Höddu hvolfdi og skipstjóri hennar var hætt kominn. Honum var bjargað upp úr sjónum af félaga sínum til áratuga, sem var fyrir tilviljun við veiðar á sama stað. Fengu dóm fyrir að skilja manninn eftir í sjónum Mikla athygli vakti að Longdawn var siglt á brott án þess að skipstjóra Höddu væri gefinn nokkur gaumur. Svo fór að skipstjóri Longdawn hlaut eins árs skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að stofna lífi og heilsu mannsins í augljósan háska á ófyrirleitin hátt og fyrir að vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna þegar áreksturinn varð. Annar stýrimaður stýrimaðuri skipsins fékk átta mánaða dóm, einnig skilorðsbundinn. Skipstjórinn gaf stýrimanninum fyrirmæli um að halda för skipsins áfram eftir áreksturinn þrátt fyrir að stýrimaðurinn hefði upplýst hann um áreksturinn og að hann teldi sig hafa séð bátinn sökkva. Hafi mögulega ekki séð ljósin Í greiningu RNSA segir að þann 16. maí 2024 klukkan 02:30 hafi verið myrkur á árekstrarstað en örlítið farið að bjarma af degi. Samkvæmt reglum eigi langdrægni sigluljósa skipa lengri en 50 metrar að vera sex sjómílur. Langdrægni hliðarljósa þurfi að vera þrjár sjómílur. Um tuttugu mínútum fyrir áreksturinn hafi Hadda verið sex sjómílur frá Longdawn og þá hefði skipstjóri Höddu átt að sjá sigluljós Longdawn sem þá hafi verið á stjórnborða við Höddu. Eins og sjá má á þessari mynd skemmdist Hadda töluvert.Vísir/Sigurjón Á þeim tímapunkti hafi ekki verið árekstrarhætta fyrir hendi en átján mínútum fyrir árekstur hafi hún skapast en Hadda hafi þá verið 5,7 sjómílum frá Longdawn og miðun Höddu í Longdawn 12°rv. Á skipum yfir 50 metrum sé almenna krafan að aftara sigluljósið sjáist 1000 metra frá sjávarfleti miðað við réttan stafnhalla. Það sé því möguleiki að skipstjóri Höddu hafi ekki séð nein ljós frá skipinu, verið kominn inn í óupplýstan geira, þegar hann var nálægt því. Enda sé Hadda Sómabátur lágt á sjó og stýrishúsið varni því að hægt sé að horfa upp fyrir sig. Þekkti ekki reglurnar Skipstjóra Höddu hafi ekki verið kunnugt um þær reglur sem gilda um siglingu á aðskildum siglingaleiðum en þekkta aðra reglu sem segi: „Þegar tvö vélskip stefna þannig að leiðir þeirra skerast og hætta er á árekstri, skal skipið sem hefur hitt á stjórnborða víkja og skal, ef aðstæður leyfa, forðast að fara fram fyrir hitt skipið“. Vakthafandi stýrimaður Longdawn hafi haft forsendur til að gera sér grein fyrir að stefndi í árekstur. Þrátt fyrir að Longdawn ætti forgang bæri skipinu að fara að reglu sem segir „Þegar skipið sem á að halda stefnu og ferð óbreyttri er af einhverjum ástæðum komið svo nærri að ekki verður komist hjá árekstri með þeim einum stjórntökum sem skipið sem á að víkja grípur til skal skipið sem á að halda stefnu og ferð óbreyttri gera hverjar þær ráðstafanir sem best geta afstýrt árekstri“. Allt að mjög ölvaður Þá segir að við rannsókn lögreglu hafi komið fram að skipstjóri Longdawn hafi verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Tekin hafi verið blóðsýni klukkan 13:26 og 14:25 en samkvæmt niðurstöðu Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði hafi áfengismagn í blóði hans verið frá 1,4 prómill til 2,9 prómill. „Það þýðir að skipstjórinn, miðað við að hafa lítið sem ekki drukkið eftir klukkan 02:49, hafi verið allt frá því að vera ölvaður upp í mjög ölvaður um það leyti sem áreksturinn átti sér stað. Auk þess mældist í honum niðurbrotsefni fíkniefna.“ Ölvun skipstjórans hafi að líkindum truflað dómgreind hans og vakthafandi stýrimaður sem hafi verið alsgáður ekki treyst sér til að fara gegn fyrirmælum hans. Stýrimaðurinn hafi engu að síður talið að hann hefði siglt niður bát en ekki brugðist við því heldur haldið för áfram að fyrirmælum skipstjóra. Útgerð Longdawn, hafi eftir atvikið gripið til ýmissa aðgerða. Þar sé meðal annars um að ræða uppfærslu á gæðakerfi skipsins auk annarra atriða sem snúa að öryggi og hegðun, svo sem varðar neyslu áfengis eða fíkniefna. Athygli þurfi að vera óskipt Í skýrslunni segir að niðurstaða rannsóknarinnar sé að samverkandi þættir hafi orðið til þess að árekstur varð milli Höddu og flutningaskipsins Longdawn. Skipstjóra Höddu hafi borið að víkja. Hann hafi ekki fylgst nægjanlega vel með siglingu bátsins, sem hafi verið á 20 hnúta ferð. Vakthafandi stýrimaður Longdawn, sem þrátt fyrir að eiga forgang, hafi borið gera allt til að forða árekstri. Skipstjóri Longdawn hafi verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna og skort því dómgreind til ákvarðanatöku. Vakthafandi stýrimaður Longdawn hafi hlýtt fyrirmælum skipstjórans þrátt fyrir efasemdir og haldið siglingu áfram. Þá segir að RNSA beini því því til Landhelgisgæslunnar að þegar send eru út MADAY RELAY neyðarboð séu þau tafarlaust send einnig út á ensku. Loks segir, undir liðnum mikilvæg ábending, að athygli við siglingu báta á mikilli ferð þurfi að vera óskipt. Önnur verk ættu að bíða þar til báturinn hefur verið stöðvaður og vissa sé fyrir hendi að engin hætta sé aðvífandi.
Samgönguslys Sjóslys við Garðskaga 2024 Sjávarútvegur Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira