Sagði nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast Samúel Karl Ólason skrifar 26. mars 2025 18:22 Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. AP/Jacquelyn Martin Talsmenn Hvíta hússins hafa síðustu daga varið miklu púðri í að gagnrýna blaðamann sem var fyrir mistök bætt inn í spjallhóp margra af æðstu ráðamönnum Bandaríkjanna. Þar ræddu þeir yfirvofandi árásir gegn Hútum í Jemen og deildu upplýsingum um árásirnar sín á milli en búið er að birta öll samskiptin úr hópnum. Í hópnum voru varaforseti Bandaríkjanna, utanríkisráðherra, varnarmálaráðherra, þjóðaröryggisráðgjafi Hvíta hússins, yfirmaður CIA, yfirmaður allra leyniþjónusta Bandaríkjanna og sérstakur erindreki Donalds Trump gagnvart Mið-Austurlöndum, Úkraínu og Rússlands, sem var þá staddur í Rússlandi, svo einhverjir séu nefndir. Athygli hefur vakið að Christopher Grady, aðmíráll og starfandi formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, var ekki í hópnum. Þau töluðu um það hvort gera ætti árásir á Húta, af hverju, hvernig ætti að láta Evrópu borga fyrir árásirnar og hvernig ætti að gera þær. Því hefur einnig verið haldið fram að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, hafi deilt leynilegum upplýsingum fyrir árásirnar um hvenær þær ættu að hefjast, hvernig þær yrðu gerðar og skotmörk. Trump-liðar hafa haldið því sérstaklega fram að Hegseth hafi ekki deilt „stríðsáætlunum“ og að því sem deilt hafi verið í hópnum hafi ekki verið leynilegar upplýsingar. Talskona Hvíta hússins hefur bent á að í grein Atlantic er talað um „árásaráætlun“ en ekki „stríðsáætlun“ og það hefur Hegseth gert einnig. Í viðtali við Fox sagði hann alveg ljóst að engum „stríðsáætlunum“ og engum leynilegum upplýsingum hefði verið deilt. Pete Hegseth: "Nobody is texting war plans. Well I noticed this morning, out came something that doesn't look like war plans. And as a matter of fact, they even changed the title to 'attack plans,' because they know it's not war plans." pic.twitter.com/sJY3ZkIGsW— Aaron Rupar (@atrupar) March 26, 2025 Þeir hafa einnig ítrekað gagnrýnt blaðamanninn harðlega, þó hann hafi lítið annað gert en að vera skráður á samskiptaforritið Signal, en þjóðaröryggisráðgjafi Trumps bætti honum í áðurnefndan hóp og virðist hann ekki hafa gert sér grein fyrir hverjum hann var að bæta inn í hópinn. Meðal annars hefur blaðamaðurinn verið kallaður úrhrak, ræfill og fúskari. Sjá einnig: Segist bera fulla ábyrgð... en samt ekki Atlantic hefur nú birt skjáskot af öllum samskiptum í hópnum, á þeim grunni að Hvíta húsið hefur sagt að engar leynilegar upplýsingar hafi verið send í hópnum, og kemur þar fram að Hegseth sagði öðrum í hópnum nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast töluvert áður en þær hófust. Bæði núverandi og fyrrverandi starfsmenn i varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og aðrir sérfræðingar hafa sagt fjölmiðlum vestanhafs að upplýsingarnar sem Hegseth deildi ættu klárlega að vera leynilegar. AP fréttaveitan segir að leiðtogar varnarmálanefndar öldungadeildar þingsins hafi sent kröfu á Hvíta húsið um að málið verði rannsakað og að meðlimur ríkisstjórnarinnar mæti á fund nefndarinnar og segi meðlimum hennar ítarlega frá málinu. Sagði nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast Það helsta sem kemur fram í þessum nýju skjáskotum snýr að Hegseth. Að morgni laugardagsins 15. mars, dagsins sem Bandaríkjamenn hófu umfangsmiklar árásir gegn Hútum sem standa enn yfir, sendi varnarmálaráðherrann löng skilaboð á hópinn. Þar kom fram nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast, hvenær frekari árásir yrðu gerðar og hvernig. Þetta var hálftíma áður en árásirnar áttu að hefjast og fylgdu upplýsingar um fimm árásarbylgjur yfir rúmlega þrjá klukkutíma. Þá kom fram að fyrsta árásin yrði gerð á tiltekinn meðlim Húta og að notast yrði við F-17 Hornet herþotur, MQ-9 dróna og Tomahawk stýriflaugar. Pete Hegseth TEAM UPDATE: TIME NOW (1144et): Weather is FAVORABLE. Just CONFIRMED w/CENTCOM we are a GO for mission launch. 1215et: F-18s LAUNCH (1st strike package) 1345: “Trigger Based” F-18 1st Strike Window Starts (Target Terrorist is @ his Known Location so SHOULD BE ON TIME) – also, Strike Drones Launch (MQ-9s) 1410: More F-18s LAUNCH (2nd strike package) 1415: Strike Drones on Target (THIS IS WHEN THE FIRST BOMBS WILL DEFINITELY DROP, pending earlier “Trigger Based” targets) 1536: F-18 2nd Strike Starts – also, first sea-based Tomahawks launched. MORE TO FOLLOW (per timeline) We are currently clean on OPSEC. Godspeed to our Warriors. Skilaboðin enduðu á því að Hegseth sagði engar upplýsingar um þessar árásir hafa lekið, jafnvel þó umræðan hafi átt sér stað í samskiptaforriti sem hægt sé að hakka en vitað er til þess að Rússar hafa í það minnsta reynt það, samkvæmt heimildum AP. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna varaði við notkun Signal þann 14. mars, degi áður en árásirnar voru gerðar, vegna þess að rússneskur tölvuþrjótar væru að reyna að brjóta sér leið inn í kerfi samskiptaforritsins. Meðlimir hópsins notuðu þar að auki í mörgum tilfellum einkasíma til að skoða og senda skilaboð í hópinn. Svo var auðvitað blaðamaður í hópnum. Það að Hegseth hafi sjálfur nefnt í hópnum að enginn vissi af þessum ætluðu árásum bendir til þess að hann hafi sjálfur vitað að mikilvægt væri að svo gerðist ekki. Sérfræðingar segja ljóst að upplýsingar sem þessar ættu að vera leynilegar en Trump og ráðamenn hans segja að svo hafi ekki verið. Hvorki talsmenn Hvíta hússins né embættismenn hafa viljað segja hver svipti leyndarhulunni af upplýsingunum og hvenær það var gert. Hrósuðu hvort öðru fyrir góð störf Svokölluð „stríðsáætlun“ væri samkvæmt frétt New York Times mun ítarlegri en upplýsingarnar sem Hegseth deildi með hópnum. Hins vegar þykir ljóst að ef upplýsingunum hefði lekið hefði það getað ógnað lífi flugmanna og gert skotmörkum kleift að komast undan. Skilaboðin gefa einnig til kynna að Tulsi Gabbard, yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, hafi sagt ósatt í opnum nefndarfundi á þinginu í gær þar sem hún staðhæfði að engum ítarlegum upplýsingum um árásirnar hefði verið deilt í hópnum. Áður en blaðamaðurinn yfirgaf hópinn sagði þjóðaröryggisráðgjafi Trumps frá því að helsta skotmark Bandaríkjamanna hefði verið í húsi kærustu sinnar og það hefði hrunið eftir árásir. Eftir það hrósuðu þau hvort öðru fyrir góð störf og yfirmönnum CENTCOM, yfirstjórnar Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum. Bandaríkin Donald Trump Jemen Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Pete Hegseth TEAM UPDATE: TIME NOW (1144et): Weather is FAVORABLE. Just CONFIRMED w/CENTCOM we are a GO for mission launch. 1215et: F-18s LAUNCH (1st strike package) 1345: “Trigger Based” F-18 1st Strike Window Starts (Target Terrorist is @ his Known Location so SHOULD BE ON TIME) – also, Strike Drones Launch (MQ-9s) 1410: More F-18s LAUNCH (2nd strike package) 1415: Strike Drones on Target (THIS IS WHEN THE FIRST BOMBS WILL DEFINITELY DROP, pending earlier “Trigger Based” targets) 1536: F-18 2nd Strike Starts – also, first sea-based Tomahawks launched. MORE TO FOLLOW (per timeline) We are currently clean on OPSEC. Godspeed to our Warriors.
Bandaríkin Donald Trump Jemen Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira