Tíska og hönnun

Hús­fyllir þegar tísku­sýning tók yfir Ás­mundar­sal

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tískusýning Sóleyjar Jóhannsdóttur sló í gegn í Ásmundarsal.
Tískusýning Sóleyjar Jóhannsdóttur sló í gegn í Ásmundarsal. Ásmundarsalur

Gestir flykktust að í Ásmundarsal síðastliðinn laugardag þegar fatahönnuðurinn Sóley Jóhannsdóttir frumsýndi sína fyrstu fatalínu, Sleepwalker. Yfir 200 manns mættu og viðbrögðin létu ekki á sér standa.

Sóley útskrifaðist með meistaragráðu í fatahönnun frá Institut Français de la Mode í París og hefur starfað hjá tískurisum á borð við Louis Vuitton og Paul Smith. Hún hefur verið búsett í París síðastliðin 8 ár en ákvað að frumsýna sína fyrstu línu hérlendis.

Línan sækir innblástur í svefngöngu og draumkennt ástand undirvitundar en Sóley segir að hún hafi fengið innblástur frá vinkonu sinni sem á það til að ganga í svefni.

„Línan er innblásin af þessu draumaástandi, þegar fólk gengur um í svefni og fer að gera alls kyns rugl, eins og að klæða sig í föt á algjörlega ómeðvitaðan hátt,“ segir Sóley en þessi hughrif móta snið og hönnun línunnar, sem spanna flæðandi rómantískar flíkur yfir í grófar, stórar yfirhafnir.

„Eftirvæntingin var áþreifanleg þegar fyrsta módel steig á svið og ætlaði lófataki aldrei að linna að sýningu lokinni. Bláa Lónið gaf gjafapoka, módelin komu frá Ey agency og veitingar voru í boði Ásmundarsalar. Sýningin fór fram í innsetningu Bryndísar Bolladóttur, Ljóstillífun, sem opnaði á HönnunarMars og gerði umgjörðina áhrifaríkari og upplifunina einstakari,“ segir í fréttatilkynningu frá Ásmundarsal.

Hér má sjá myndir af hátísku herlegheitunum:

Gestir biðu spenntir.Sóllilja Tindsdóttir
Skvísulæti.Sóllilja Tindsdóttir
Sigríður Margrét og Maja Mist glæsilegar tískupíur.Sóllilja Tindsdóttir
Sýningin var þétt setin.Sóllilja
Er um að ræða fyrstu fatalínu Sóleyjar. Ásmundarsalur
Fyrirsæturnar klárar og förðunarfræðingarnir Rósa Guðbjörg og Sunna Björk sáu til þess að förðunin var upp á tíu.Sóllilja Tindsdóttir
Glæsilegar töskur voru sömuleiðis áberandi.Ema Flajzarova
Líf og fjör á safninu!Ema Flajzarova
Ísold fyrirsæta í undirbúningi.Ólöf Rut Stefánsdóttir
Gestir fylgdust grannt með afrakstri Sóleyjar. Ásmundarsalur
Stórar og tilkomumiklar kápur. Ásmundarsalur
Fyrirsætan Hlín gekk tískupallinn en hún hefur verið að gera það gott úti í heimi og meðal annars unnið með tískuhúsi Vivienne Westwood. Erna
Bara Bernhöft í förðun.Ólöf Rut Stefánsdóttir
Glæsilegt leðurfitt.Ásmundarsalur
Gestir á spjalli.Sóllilja Tindsdóttir
Anna Clausen stílisti og fyrirsæta leiðir hópinn. Ásmundarsalur
Sóley Jóhannsdóttir fatahönnuður fagnaði virkilega vel heppnaðri sýningu.Ásmundarsalur
Fyrirsæta undirbýr sig bak sviðs.Sóllilja Tindsdóttir
Anna Clausen ofurtöff.Ásmundarsalur
Maja Mist smellir af mynd.Sóllilja Tindsdóttir
Ísold rétt áður en hún steig á tískupallinn.Sóllilja Tindsdóttir
Glæsilegar fyrirsætur ásamt Sóleyju Jóhanns.Ásmundarsalur
Ísold í vínrauðum leðurdraumi.Erna
Stemningin var mjög góð.Ásmundarsalur
Erna Lilja í sminki.Sóllilja Tindsdóttir
Tískusýningin fór fram í innsetningu Bryndísar Bolladóttur, Ljóstillífun.Ásmundarsalur
Hlín glæsileg en tískusýningin fór fram í öllu húsi Ásmundarsals.Ólöf Rut Stefánsdóttir
Fyrirsæturnar í lok sýningarinnar.Ásmundarsalur
Aníta Ósk að verða tilbúin.Sóllilja Tindsdóttir
Sara í förðun hjá Sunnu Björk stjörnuförðunarfræðingi.Sóllilja Tindsdóttir
Leður í lit.Ásmundarsalur
Tryllt taska úr hönnun Sóleyjar.Sóllilja Tindsdóttir
Klæðileg og töff snið.Ásmundarsalur
Fyrirsæturnar tóku æfingu.Sóllilja Tindsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.