Kemur til greina að Ísland sendi fólk til Úkraínu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 14. apríl 2025 20:30 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Vilhelm Til greina kemur að Ísland efli stuðning við Úkraínu með því að senda þangað borgaralega sérfræðinga segir utanríkisráðherra. Beiðni Íslands um samstarfsyfirlýsingu við Evrópusambandið í öryggis- og varnarmálum er í farvegi, en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa kallað eftir auknu samráði við þingið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er ein þeirra sem fordæmt hafa blóðugar árásir Rússa í Úkraínu um helgina. „Þetta er enn ein ömurðin og yfirgangur af hálfu Rússa. Við skulum draga það fram og hafa það alveg skýrt í huga að Úkraínumenn eru búnir að fallast skilyrðislaust á vopahlé. Rússar eru alltaf að leika einhverja tafaleiki og þessir tafaleikir felast meðal annars í því að ráðast á innviði, borgaralega innviði og drepa fjölskyldur og börn,“ segir Þorgerður í samtali við fréttastofu. Sjá einnig: Fordæma harkalega árás Rússa í Úkraínu Það er eitt að fordæma og sýna stuðning í orði en svo annað í verki, kemur til greina að Ísland auki við stuðning sinn í Úkraínu með einhverjum hætti? „Við höfum verið að gera það og ætlum okkur að halda áfram í ljósi þess sem allar Evrópuþjóðir eru að gera og ég lýsti því yfir í síðustu viku að innan ramma ráðuneytisins þá erum við að auka um 600 milljónir til þessa verkefnis sem við erum að leiða ásamt Litháen sem er jarðsprengjuleitarverkefni. Það er mjög mikilvægt, bæði út frá hernaði en ekki síður út frá mannúð. Þannig við erum að auka þar, það er mjög vel þegið. En Úkraínumenn eru náttúrlega að biðja fyrst og síðast um beinan stuðning sem að lítur að hernaði og vörnum, og við auðvitað hlustum á það,“ svarar Þorgerður. Skoða hvers konar sérfræðinga Ísland geti sent til Úkraínu Þá segir hún koma til greina að senda mannskap frá Íslandi til Úkraínu. „Við höfum sagt að við erum tilbúin til þess að skoða meðal annars á grundvelli viljugra þjóða til stuðnings Úkraínu að skoða það sem bæði hentar okkur Íslendingum, við erum náttúrlega góð í borgaralegum verkefnum og við erum með eitt og annað í huga til þess að styðja við Úkraínu þegar þar að kemur og vonandi fyrr en síðar,“ segir Þorgerður. „Við erum að skoða hvaða og hvers konar sérfræðinga við getum sent til Úkraínu. En það þarf náttúrlega fleiri sérfræðingar á sviði orkumála og orkumannvirkja og það er hluti af þeirri aðstoð sem að við höfum á umliðnum misserum verið að senda til,“ segir Þorgerður, en Ísland hefur meðal annars stutt Úkraínu með búnaði og tækjum til enduruppbyggingar á orkumannvirkjum sem hafa verið skotmörk Rússa. Vill gera samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál við ESB Öryggis- og varnarmál hafa verið í brennidepli á vettvangi Evrópusambandsins undanfarin misseri. Fyrir helgi kom fram í fréttum að samstarf Íslands og ESB í varnarmálum sé komið í formlegan farveg og er beiðni Íslands um yfirlýsingu þess efnis í farvegi. Þorgerður segir að markmiðið sé að fjölga stoðum undir varnir og öryggi landsins, en Ísland en varnarsamningur við Bandaríkin og aðild að Atlantshafsbandalaginu eru stærstu stoðirnar í þeim efnum sem stendur. „Erum að gera eins og til dæmis Norðmenn sem að gerðu svona samstarfsyfirlýsingu fyrir ári síðan. Japan og Suður-Kórea eru líka búin að gera samastarfsyfirlýsingu við Evrópusambandið á grunni varna- og öryggis. Við höfum sótt um það formlega að við gerum með okkur svona yfirlýsingu og skoðum sérstaklega hvað hægt er að gera með varnir og öryggi og hagsmuni Íslands í huga. Og munum náttúrlega og viljum undirstrika það að fullveldið er mjög mikilvægt, að það sé varðveitt, friðhelgi landamæra og sjálfstæði landa,“ segir Þorgerður. Sendi minnisblað til utanríkismálanefndar Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa sumir gagnrýnt að málið hafi ekki fengið næga umræðu í þinginu áður en stjórnvöld fóru á stað í þessa vegferð. Þeirra á meðal Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, sem vakti máls á þessu á samfélagsmiðlum um helgina, og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sem tók málið upp í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í síðustu viku. Er þetta ekki eitthvað sem þarf að ræða þétt og í samstarfi við Alþingi? „Jú, ekki spurning. Enda hef ég þegar sent utanríkismálanefnd minnisblað um nákvæmlega þetta,“ svarar Þorgerður. „Ég sé gríðarleg sóknarfæri líka fyrir íslenskt atvinnulíf af því að Evrópusambandið er að stórauka við á þessu sviði. Við erum að sjá Evrópu og NATO vinna miklu þéttar saman, kemur fram á hverjum fundinum á fætur öðrum,“ segir Þorgerður. Til að mynda sé Evrópa líka að bæta í sjóði sem að Íslendingar geti líklega sótt í, þar hjálpi að Ísland sé aðili að EES. „En ég sé sóknarfæri í nýsköpun og ákveðnum verkefnum hér innanlands líka í tengslum við, jafn hörmulegt og ástand og er samt í heiminum, en við getum gert eitt og annað og erum með dýrmæta þekkingu á ýmsum sviðum.“
Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Úkraína Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Sjá meira