Innlent

Tvö um­ferðar­slys og þrír fluttir á sjúkra­hús

Freyja Þórisdóttir skrifar
Fólksbílarnir tveir sem urðu óökuhæfir í slysinu voru dregnir af vettvangi.
Fólksbílarnir tveir sem urðu óökuhæfir í slysinu voru dregnir af vettvangi. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á varðsvæði 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um umferðarslys á tíunda tímanum í dag en tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Þá barst lögreglunni á stöð 4 tilkynning um umferðarslys um klukkan tólf en umdæmi hennar nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl.

Það voru tveir fólksbílar sem lentu saman við gatnamót Hraunbrúnar og Flatahrauns í Hafnarfirði en aðeins einn var í hvorum bíl og voru báðir ökumenn viðræðuhæfir þegar lögregluna bar að garði en þó fluttir á slysadeild vegna áverka, meðal annars á höfði.

Þetta staðfestir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Stöð 2 en hann segir bílana báða hafa verið óökuhæfa og að þeir hafi verið dregnir af vettvangi.

Á varðsvæði stöðvar 4 skullu þrír bílar saman um klukkan 12:00 en þeir voru á leið í sömu akstursátt. Þetta staðfestir aðalvarðstjóri Grétar Stefánsson í samtali við blaðamann Vísis en hann greindi frá því að einn ökumaður hafi verið fluttur á slysadeild til skoðunar en sá hafi ekki verið skráður með meiriháttar áverka.

Hann sagðist telja aukinn fjölda umferðarslysa á dögunum vera tilkominn meðal annars vegna þess að það er farin að myndast meiri hálka á vegum en sólin er einnig lágt á lofti stóran hluta dags og getur blindað ökumenn. Þó hafi fyrri ástæðan líklega verið sú sem olli þriggja bíla árekstrinum í umdæminu.

Í dagbók lögreglunnar voru tvö umferðaróhöpp skráð en annað þeirra átti sér stað í umdæmi stöðvar 2 en þar flúði ökumaður annarrar bifreiðarinnar vettvang með því að aka á brott, þó ekki fyrr en önnur skráningarplata af ökutækinu féll af og varð eftir. Ekki liggur fyrir hvort það hafi tekist að hafa uppi á ökumanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×