Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Jón Þór Stefánsson skrifar 9. maí 2025 17:03 Margrét Friðriksdóttir fór fram á að þinghaldið yrði opið. Aðalmeðferð í máli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra vefsins Frettin.is verður háð fyrir opnum tjöldum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Margrét er ákærð fyrir ærumeiðingar í garð dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem hafði sakfellt hana fyrir hótanir.
Barbara Björnsdóttir héraðsdómari er brotaþoli í málinu. Hún og lögreglan voru á sama máli um að málið skyldi vera háð fyrir luktum dyrum. Héraðsdómur Reykjaness féllst á það, en Landsréttur sneri úrskurðinum við, og þinghaldið því opið. Dagana eftir að Margrét var sakfelld, í febrúar árið 2023, fyrir hótanir í garð baráttukonunnar Semu Erlu Serdaroglu í Héraðsdómi Reykjavíkur birti Margrét færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“. Hún hélt því jafnframt fram að vitnisburðir í máli hennar hefðu verið falsaðir og um hefði verið að ræða „plott“ til að fá hana sakfellda. Þess má geta að dómnum á hendur Margréti fyrir hótanirnar var áfrýjað til Landsréttar og þar var hún sýknuð. Markmið Margrétar að sverta mannorð Barböru Í maí í fyrra gaf lögreglan áðurnefnda ákæru út á hendur Margréti, fyrir aðdróttanir í garð Barböru. Lögreglan fór fram á að þinghald málsins yrði lokað og sagðist með því taka undir sjónarmið brotaþola, Barböru. Ljóst væri að Margrét hyggðist draga persónu og einkahagi Barböru inn í málið án haldbærrar tengingar við raunverulegt sakarefni málsins. Með því myndi hún vega að friðhelgi einkalífs Barböru og nánustu fjölskyldu hennar. Að mati lögreglunnar er Barbara ekki þjóðþekkt manneskja og því ætti „tilgangslaus umfjöllun um einkalíf hennar ekkert erindi við almenning“. Slíkt væri einungis til að valda henni óþarfa sárindum. Málatilbúnaður Margrétar snerist um að sverta mannorð Barböru. Eitt vitni af þremur fær að mæta Héraðsdómur féllst á að hafa þinghaldið lokað til þess að hlífa Barböru og fjölskyldu hennar. Í úrskurði Héraðsdóms segir að Margrét ætli að leiða fyrir dóminn þrjú vitni með það að markmiði að sanna orðin sem hún er ákærð fyrir. Héraðsdómur gat ekki séð að framburður tveggja þeirra gæti haft áhrif á úrlausn málsins. Hins vegar var henni heimilað að leiða eitt þeirra fyrir dóminn. Dómarinn geti stöðvað óviðeigandi spurningar Margrét kærði úrskurðinn til Landsréttar og vildi að þinghaldið yrði opið. Annars vegar var Landsréttur, líkt og héraðsdómur, á sama máli varðandi vitnin, að leyfa Margréti að leiða eitt tiltekið vitni fyrir dóminn en ekki hin tvö. Hins vegar komst Landsréttur að því að þinghaldið ætti að vera opið. Í úrskurði dómsins segir að yfirleitt sé þungbært fyrir þá sem tengjast málum að þinghöld í sakamálum séu opin, en það nægi þó ekki eitt og sér til þess að þeim verði lokað, heldur verði eitthvað meira til að koma svo að það verði gert. Dómurinn féllst á það að gera megi ráð fyrir að Margrét ætli að spyrja umrætt vitni nærgöngulla spurninga um einkalíf þess. Landsréttur þyngdi dóminn.Vísir/Vilhelm Landsréttur benti á í því samhengi að dómari málsins megi koma í veg fyrir að spurningar til vitna séu „óákveðnar, tvíræðar,veiðandi, óþarflega móðgandieða særandi“. Jafnframt megi koma í veg fyrir að spurningar séu lagðar fram til að villa um fyrir vitnum, eða þá stoppa spurninar sem séu augljóslega tilgangslausar. Þar með gæti dómarinn gætt þess að ekki sé gengið nær einkalífi vitnanna en nauðsyn krefur. Því þótti Landsrétti ekki efni til þess að loka þinghaldi málsins, hvorki í heild né að hluta. Fékk ekki að vera vanhæfur Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Landsréttur snýr við dómi héraðsdóms í þessu tiltekna máli. Þegar málið kom upp viku allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur úr sæti vegna tengsla þeirra við Barböru. Jónas Jóhannsson, dómari við Héraðsdóm Reykjaness, var falið að sjá um meðferð málsins. Hann komst sjálfur að því að hann væri vanhæfur til að dæma í málinu. Landsréttur var hins vegar á öðru máli og sneri úrskurðinum við. Jónas er því enn dómari málsins.
Dómsmál Dómstólar Samfélagsmiðlar Tjáningarfrelsi Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Mest lesið Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri fréttir Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Sjá meira