Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. maí 2025 18:35 Luke Rae hefur notið sín vel í upphafi tímabils en missir nú að lágmarki af næstu sex leikjum KR. vísir / jón gautur Vængmaðurinn Luke Rae verður ekki með KR næstu vikurnar. Um er að ræða mikið högg fyrir Vesturbæjarliðið þar sem Luke hefur verið magnaður það sem af er sumri. Í sex leikjum í Bestu deild karla í knattspyrnu hefur hann skorað þrjú mörk og lagt upp þrjú til viðbótar.
Þessi skemmtilegi vængmaður þurfti því miður að fara meiddur af velli þegar KR lagði ÍBV 4-1 á dögunum. Liðin mætast að nýju í Mjólkurbikarnum á morgun, miðvikudag, en þar verður Luke fjarri góðu gamni. Raunar verður hann frá næstu vikurnar. Það staðfesti þjálfari KR, Óskar Hrafn Þorvaldsson, í viðtali við Fótbolti.net. Bjartsýn spá er að Luke snúi aftur að loknu landsleikjahléi en þar sem um er að ræða tognun aftan í læri gæti verið að hann verði lengur frá keppni. Þetta er mikið högg fyrir KR enda margir leikmenn liðsins að glíma við meiðsli. Aron Sigurðarson var ekki með gegn ÍBV en gæti náð bikarleiknum. Júlíus Mar Júlíusson var fyrirliði í fjarveru Arons en fór einnig af velli gegn ÍBV og missir allavega af leiknum í Vestmannaeyjum. Óskar Hrafn vildi ekki fullyrða hversu lengi hann yrði frá. KR verður án Stefáns Árna Geirssonar allt tímabilið. Hrafn Tómasson hefur ekki enn komið við sögu en Óskar Hrafn býst við honum til baka á næstu vikum. Alexander Helgi Sigurðarson hefur ekki enn byrjað leik í sumar, sömu sögu er að segja af Guðmundi Andra Tryggvasyni. Þá hefur Birgir Steinn Styrmisson aðeins komið við sögu í einum deildarleik en hann var í byrjunarliðinu þegar KR mætti FH í Kaplakrika. Hann var hins vegar tekinn af velli þegar aðeins stundarfjórðungur var liðinn.
Fótbolti Íslenski boltinn KR Besta deild karla Mjólkurbikar karla Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira