Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 3. júní 2025 13:36 Aron Kristinn og Lára eiga von á sínu fyrsta barni saman á næstu vikum. Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson og viðskiptafræðingurinn Lára Portal hafa fest kaup á glæsilegri íbúð við Vesturgötu í Reykjavík. Um er að ræða mikið endurnýjaða 103,3 fermetra íbúð í húsi sem var byggt árið 1956. Kaupverðið nam 96,1 milljón króna.
Aron hefur gert garðinn frægan með hljómsveitinni ClubDub. Þeir hafa gert garðinn frægan með lögum á borð við Bad bitch í Reykjavík og Aquaman. Lára er viðskiptafræðingur, jógakennari og starfar hjá KPMG sem sérfræðingur í sjálfbærni. Þau hafa verið saman í rúm tíu ár og eiga von á sínu fyrsta barni á næstu vikum. Aron og Lára keyptu íbúðina af Jónu Maríu Ólafsdóttur, verkefnastjóra hjá Siðmennt, og Andrési Fjeldsted, lögfræðingi. Þau eignuðust íbúðina árið 2020 og gerðu hana upp á stílhreinan og smekklegan hátt þar sem ljósir og mjúkir litir ráða ríkjum. Fagurfræði og heillandi smáatriði Íbúðin skiptist í opið og fallegt stofurými með ljósu síldarbeinaparketi á gólfum. Tvöföld frönsk hurð aðskilur stofuna frá anddyri og gefur heildarmyndinni sjarmerandi yfirbragð. Úr stofunni er gengið út á suðursvalir. Upprunalegir hvítir skrautlistar og rósettur í lofti gefa rýminu klassískt og glæsilegt yfirbragð. Eldhúsið er opið inn í stofu og búið ljósgrárri innréttingu, stórri eyju og ljósum steini á borðplötum. Ljósar flísar á veggjum setja fallegan svip á rýmið, og hugað hefur verið að hverju smáatriði. Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Það er með ljósri innréttingu með eikarframhlífum frá Haf Studio og borðplötu úr kvartssteini.
Fasteignamarkaður Hús og heimili Reykjavík Tónlist Ástin og lífið Barnalán Mest lesið Hætt að nota föt til að fela sig Tíska og hönnun Hitinn náði nýjum hæðum á klúbbnum Lífið Leikkonan Diane Ladd er látin Lífið Krýndur „kynþokkafyllsti maður ársins“ Lífið „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Lífið Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Lífið Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Menning Dagur Sig genginn í það heilaga Lífið Breiðholtsskóli og Hagaskóli áfram í úrslit í Skrekk Lífið Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Tíska og hönnun Fleiri fréttir Krýndur „kynþokkafyllsti maður ársins“ Breiðholtsskóli og Hagaskóli áfram í úrslit í Skrekk Leikkonan Diane Ladd er látin Hitinn náði nýjum hæðum á klúbbnum Málar myndir með vinstri hendi eftir heilablóðfall „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Sjö lykilþættir að árangursríkari samskiptum Stjörnulífið: „Ef fólk hættir að gagnrýna mig svelt ég“ Hefur farið í gegnum sambandsslit, gjaldþrot og fjárkúgunarmál frammi fyrir þjóðinni Leikstýrir kærastanum í stærsta harmleik sögunnar Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Spenna á rafíþróttaæfingu fyrir eldri borgara Dagur Sig genginn í það heilaga Svona er kynlífsþjónusta á Íslandi Tók tíu klukkustundir að komast í búninginn Krakkatían: Dóra landkönnuður, Neyðarlínan og „borgin eilífa“ Kyngdi stoltinu og fjölmargir buðu fram nýra Tchéky Karyo látinn Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Heillandi raðhús Evu Maríu og Trausta til sölu Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Fundin eftir sjö vikur á vergangi: „Takk hver sem þú ert“ Fresta hrekkjavöku til að tryggja öryggi lítilla skrímsla Stjörnurnar skinu skært á sögulegum sjónvarpsverðlaunum Atli Steinn fann ástina á ný „Síðasta flugtak“ Play í Gamla bíói Már Gunnars genginn út Verk Þórdísar Erlu munu prýða auglýsingaskilti borgarinnar Sjá meira