Gömlum Flugfélagsþristi bætt við á Sólheimasand Kristján Már Unnarsson skrifar 12. júní 2025 21:42 Flugvélin hífð yfir flugvallargirðingu Keflavíkurflugvallar síðdegis. KMU Gömul Douglas Dakota-flugvél, sem landeigendur Sólheimasands keyptu í vetur af Þristavinafélaginu, verður í kvöld flutt eftir þjóðvegum austur í sveitir frá Keflavíkurflugvelli. Fyrirhugað er að skrokknum verði komið fyrir á sandinum nálægt gamla flugvélarflakinu sem verið hefur einn helsti ferðamannastaður Suðurlands.
Í fréttum Sýnar var sýnt beint frá flutningnum. Flugvélin var fyrr í dag dregin út úr flugskýli á Keflavíkurflugvelli þar sem hún hefur verið í geymslu undanfarin átján ár. Til að koma henni út af flugvallarsvæðinu þurfti að hífa hana yfir flugvallargirðinguna þar sem hún komst ekki í gegnum hlið vallarins. Gunnfaxa komið fyrir á vörubílspallinum.KMU Flugvélarskrokkurinn verður í kvöld fluttur á vörubílspalli í lögreglufylgd um Grindavík og Suðurstrandarveg, um Óseyrarbrú og síðan um Suðurlandsveg um Þjórsárbrú að áfangastað á Sólheimasandi. Vængirnir eru hafðir á tveimur öðrum vörubílum. Áætlað er að bílalestin leggi af stað frá flugvellinum klukkan 22. Tómas Dagur Helgason, formaður Þristavinafélagsins, og Benedikt Bragason, bóndi á Ytri-Sólheimum, stilla stélhjólið af.KMU Flugvélin þjónaði lengst af í innanlandsflugi Flugfélags Íslands, hét Gunnfaxi og var með skrásetningarstafina TF-ISB. Gunnfaxi flaug síðast árið 1976 en var þá gefinn Landgræðslunni til að nota í varahluti fyrir Pál Sveinsson. Þegar svo Þristavinafélagið fékk Pál Sveinsson að gjöf árið 2005 fylgdi Gunnfaxi með. Gunnfaxi á flugvellinum á Skógasandi árið 1960 þegar Flugfélag Íslands sinnti þangað áætlunarflugi.Snorri Snorrason „Hún var orðin fyrir hérna þannig að við urðum að fjarlægja hana héðan. Við fundum sem betur fer menn sem vilja gera eitthvað fyrir vélina og sýna hana og varðveita,” segir Tómas Dagur Helgason, formaður Þristavinafélagsins. Flugvélin bar einkennisstafina TF-ISB.Sigurjón Ólason Benedikt Bragason, bóndi á Ytri-Sólheimum, segir að flugvélinni verði ekið beint niður á Sólheimasand í kvöld. „Já, já. Við ætlum að drífa hana þangað. Ekki eftir neinu að bíða,” svarar Benedikt en á sandinum er þegar fyrir flak Varnarliðsflugvélar sem þar brotlenti árið 1973. Varnarliðsflugvéln nauðlenti á Sólheimasandi þann 21. nóvember árið 1973. Engan sakaði. Þessi mynd var tekin daginn eftir.Þórir Kjartansson „Ætli við bætum henni ekki bara við. Við ætlum að gera þessa eins vel útlítandi og hægt er og helst að koma henni í það útlit sem Varnarliðsvélin var þegar hún lenti.” -En að fara með gamalt flak út í íslenska náttúru, niður á sand. Þetta er dálítið umdeilt. Gera menn ekki athugasemd við þetta? Flak Varnarliðsvélarinnar á Sólheimasandi sumarið 2016.Stöð 2 „Ég veit það ekki. Landeigendur standa allir saman að þessu og þeir eru sáttir við þetta. Við höfum svo sem ekki miklar áhyggjur af því hvað öðrum finnst. Þetta er bara eins og gengur og gerist. Hver hefði trúað því að flugslys væri orðið eitt helsta aðalaðdráttarafl íslenskrar náttúru?” svarar Benedikt. Vængirnir eru fluttir sér á tveimur öðrum vörubílum.Sigurjón Ólason En hefði ekki komið til greina að varðveita flugvélina í upprunalegum litum til dæmis innanhúss á Samgöngusafninu á Skógum? Þeirri spurningu svarar formaður Þristavinafélagsins í frétt Sýnar, sem sjá má hér:
Fréttir af flugi Ferðaþjónusta Mýrdalshreppur Rangárþing eystra Keflavíkurflugvöllur Söfn Tengdar fréttir Landeigendur Sólheimasands keyptu gamlan Flugfélagsþrist Landeigendur Sólheimasands, sem geymir frægasta flugvélarflak Íslands, hafa keypt gamlan Flugfélagsþrist af Þristavinafélaginu. Hugmyndin er að flugvélarskrokkurinn leysi af hólmi gamla flakið á sandinum, sem er að tærast upp. 23. mars 2025 22:40 Ferðamenn flykkjast að gamla flugvélarflakinu Eigandinn segist farinn að svipast um eftir nýju flaki þar sem það gamla sé að grotna niður. 29. ágúst 2016 21:15 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Sinnt útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Sjá meira
Landeigendur Sólheimasands keyptu gamlan Flugfélagsþrist Landeigendur Sólheimasands, sem geymir frægasta flugvélarflak Íslands, hafa keypt gamlan Flugfélagsþrist af Þristavinafélaginu. Hugmyndin er að flugvélarskrokkurinn leysi af hólmi gamla flakið á sandinum, sem er að tærast upp. 23. mars 2025 22:40
Ferðamenn flykkjast að gamla flugvélarflakinu Eigandinn segist farinn að svipast um eftir nýju flaki þar sem það gamla sé að grotna niður. 29. ágúst 2016 21:15