Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Þjóðhátíð 2025 13. júní 2025 14:20 Við eldana er Þjóðhátíðarlagið í ár og er í flutning Stuðlabandsins. Í dag frumsýnir Vísir myndband við lagið. Vísir frumsýnir í dag myndband við Þjóðhátíðarlagið í ár sem heitir Við eldana og er í flutningi Stuðlabandsins. Myndbandið var tekið upp í hljóðveri á sama tíma og lagið sjálft var tekið upp og má því segja að hljóð og mynd fari hér fullkomlega saman. „
Þetta eru því skot frá raunverulegum upptökum,“ segir Marinó Geir Lilliendahl trommuleikari Stuðlabandsins. „Á milli blönduðum við saman skotum frá eldri Þjóðhátíðum sem tengjast stórum og miklum minningum hjá okkur. Þar má m.a. sjá Magga söngvara með konu sinni, brot frá okkur á stóra sviðinu og kafla frá brekkusöngnum í fyrra sem var stór í okkar sögu. Einhvern veginn er allt svo stórt og mikilfenglegt við Þjóðhátíð og við, eins og flestir landsmenn, eigum svo margar góðar minningar úr Herjólfsdal. Því fannst okkur þessi blanda einhvern veginn meika mest sens fyrir okkur og vildum ekkert flækja þetta of mikið.“ Það var Ásgeir Helgi Þrastarson sem tók upp brotin úr hljóðverinu en hann er kvikmyndatökumaður og ljósmyndari sem hefur fylgt sveitinni lengi. „Skotin frá Þjóðhátíðum koma svo frá Ásgeiri, Eiríki Hafdal, Jón from Iceland, Tuborg Tv og Senu Live.“ Stuðlabandið hefur komið fram á Þjóðhátíð allar götur síðan árið 2016. „Hátíðin er því orðinn stór partur af okkar starfsári og raunar hálfgerð uppskeruhátíð eftir langan vetur og langt sumar. Ætli það megi ekki segja að hún sé hápunktur ársins hjá bandinu.“ Meðlimir Stuðlabandsins byrjuðu snemma að semja lagið og eyddu síðan einni helgi í hljóðveri þar sem þeir tóku upp lagið, myndbandið og einnig efni fyrir heimildaþátt sem kemur út í sumar seinna. „Stuðlabandið framleiðir allt sem við kemur þessu verkefni,“ segir Marinó. „Við tökum upp lagið, útsetjum það og hljóðblöndum, klippum myndbandið og margt fleira. Þetta er mjög skemmtilegt ferli fyrir okkur sem hljómsveit og það er mikið bræðralag í gangi. Það má alveg sérstaklega nefna gítarleikarann okkar, Fannar Freyr Magnússon. Hann hefur farið fyrir framleiðsluferlinu með sinni ótrúlegu fagmennsku í hljóð- og myndvinnslu og leitt hljómsveitina áfram í þessu verkefni.“ Hann á ekki von á öðru en að myndbandið eigi eftir að vekja mikla lukku. „Við erum a.m.k. mjög ánægðir með það enda finnst okkar það kynna okkur vel og góðar minningar okkar frá Þjóðhátíð í Eyjum.“ Þótt Stuðlabandið hafi komið mörgum sinnum fram á Þjóðhátíð er mikil tilhlökkun í mannskapnum að sögn Marinós. „Tilhlökkunin er alltaf jafnmikil og við, eins og flestir tónlistarmenn sem koma þarna fram, lítum á hátíðina sem einhvers konar uppskeruhátíð okkar. Það jafnast fátt á við Herjólfsdal um verslunarmannahelgina enda er stemningin alltaf stórkostleg.“ Einnig má hlusta á lagið á Spotify.
Þjóðhátíð í Eyjum Tónleikar á Íslandi Mest lesið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira