Gæti orðið dýrastur í sögu KR Sindri Sverrisson skrifar 26. júní 2025 12:01 Alexander Rafn Pálmason fagnar sínu fyrsta marki í efstu deild en með því sló hann aldursmet. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Hinn 15 ára gamli Alexander Rafn Pálmason verður ef að líkum lætur dýrasti leikmaður sem KR hefur selt, þegar að því kemur, en danska knattspyrnufélagið Nordsjælland er sagt líklegast til að landa honum.
Fótbolti.net hefur heimildir fyrir þessu og segir jafnframt í grein sinni að Alexander gæti orðið dýrasti leikmaður sem danskt félag hefur keypt frá Íslandi. Áður hafði verið fjallað um það í Dr. Football að Alexander væri líklegur til að velja Nordsjælland en að hann væri eftirsóttur af fjölda félaga. Alexander fór einmitt til reynslu hjá Nordsjælland og einnig FC Kaupmannahöfn í vetur, áður en hann skrifaði undir samning við KR sem gildir út árið 2027. Ekki liggur fyrir hvenær Alexander færi til Nordsjælland, ef af vistaskiptunum yrði, en hafa má í huga að hann á enn eftir eitt ár í grunnskóla. Áhugi á þessum efnilega leikmanni ætti ekki að koma á óvart en hann varð í fyrrasumar yngsti leikmaðurinn til að spila í efstu deild karla á Íslandi, þá 14 ára og 147 daga gamall, þegar Óskar Hrafn Þorvaldsson setti hann inn á í 4-2 sigri gegn ÍA. Pabbi hans, Pálmi Rafn Pálmason, hafði áður verið með Alexander á varamannabekknum þegar hann stýrði KR tímabundið. Alexander hefur síðan orðið yngstur til að vera í byrjunarliði í efstu deild, yngstur til að gefa stoðsendingu og yngstur til að skora, og hrifsað met sem áður voru í eigu Eiðs Smára Guðjohnsen (Sigurður Breki Kárason, einnig í KR, var þó á undan til að bæta met Eiðs sem sá yngsti í byrjunarliði, áður en Alexander bætti met Sigurðar).
Besta deild karla KR Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira