Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2025 16:33 Framarar eru tveimur sætum og þremur stigum ofar en Vestri í Bestu deildinni en Djúpmenn eru á heimavelli. @ghinfocus Risaleikur fer fram á Ísafirði á laugardaginn kemur þegar Vestri og Fram spila um sæti í bikarúrslitaleiknum í ár.
Valsmenn eru komnir í úrslitaleik Mjólkurbikarsins eftir sigur á Stjörnumönnum í hinum undanúrslitaleiknum. Seinni undanúrslitaleikurinn fer fram á Kerecisvellinum á Ísafirði og verður flautaður í gang klukkan 14.00 á laugardaginn. Það má búast við mjög góðri mætingu hjá heimamönnum enda örugglega stærsti heimaleikurinn í sögu félagsins. Vestraliðið hefur komið mjög á óvart í Bestu deildinni í sumar en Fram hafði betur í fyrri deildarleik liðanna, 1-0, en hann var spilaður í Reykjavík. Vestri hefur aldrei komist í bikarúrslitaleik og Framarar voru þar síðast árið 2013 þegar þeir urðu bikarmeistarar undir stjórn Ríkharðs Daðasonar. Framarar hafa heldur ekki komist í undanúrslitin á þessum tólf árum sem eru liðin en Vestramenn voru þar fyrir fjórum árum en þurftu þá að spila heimaleik sinn á KR-vellinum vegna slæms ástands vallarins á Ísafirði. Vestri tapaði 3-0 fyrir Víkingum. Framarar safna nú stuðningsfólki á pallana á Ísafirði. Á miðlum knattspyrnudeildar er meðal annars boðið upp á fría rútu með fljótandi veigar. Menn þurfa reyndar að vakna mjög snemma því leikurinn er bara rétt eftir hádegi. Rútan mun leggja af stað klukkan 6.00 um morguninn frá Lambhagavelli og heimferðin er síðan strax eftir leik. Þetta gæti því orðið mjög langur dagur en skemmtilegur takist Fram að tryggja sér sæti í bikarúrslitaleiknum. Ferðalagið mun örugglega taka rúma fimm klukkutíma í hvora átt en meira en fjögur hundruð kílómetrar eru á milli heimavalla félaganna tveggja.
Mjólkurbikar karla Fram Vestri Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira