Opinberuðu sambandið með sigurkossi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2025 12:02 Lando Norris og Magui Corceiro eru ánægð saman og sambandið hefur greinilega mjög góð áhrif á akstur hans. Getty/Beata Zawrzel Breski formúlukappinn Lando Norris tyggði sér ekki aðeins sigur í formúlu 1 kappakstrinum í Ungverjalandi um helgina heldur fagnaði hann sigrinum með því að staðfesta endanlega ástarsamband sitt fyrir framan myndavélarnar.
Norris hefur oft svarað spurningum um kærustur með því að segja að hann sé enn einhleypur. Portúgalska leikkonan og fyrirsætan Margarida Corceiro, kölluð Magui, hefur þó verið áberandi á síðustu keppnum eins og í Mónakó. Þau hafa líka sést á samfélagsmiðlum hvors annars. Þau höfðu samt ekki formlega staðfest samband sitt. Eftir sigurinn í Ungverjalandi var Magui hins vegar komin niður með starfsmönnum McLaren. Norris eyddi endanlega öllum vafa um samband þeirra með því að smella á hana sigurkossi. Hún brosti út að eyrum og hafði ekki augun af Norris. Magui er ekki í sínu fyrsta sambandi með frægum íþróttamanni því hún var kærasta portúgalska knattspyrnumannsins Joao Felix frá 2019 til 2023. Sambandið er greinilega að hafa góð áhrif á Norris því frá og með Mónakókappakstrinum þá hefur hann unnið fjórar af síðustu sjö keppnum þar af þrjár af síðustu fjórum. Norris hefur fyrir vikið minnkað forskot liðsfélaga síns Oscar Piastri niður í níu stig í baráttunni um heimsmeistaratitilinn þegar aðeins þrjár keppnir eru eftir. Það þýðir að það verður spennandi keppni á milli liðsfélaga um heimsmeistaratitilinn sem hvorugur þeirra hefur unnið. Norris varð annar í heimsmeistarakeppninni í fyrra en Piastri endaði þá í fjórða sæti. Árið á undan varð Norris sjötti en í Piastri í níunda sæti. Após ter ganho o Grande Prémio da Hungria do Campeonato Mundial de Fórmula 1, Lando Norris celebrou a conquista com um beijo a Margarida Corceiro. O momento amoroso rapidamente se tornou viral, pondo assim um ponto final às dúvidas se o piloto e a atriz mantêm uma relação. pic.twitter.com/IhP4GJSSWe— 24Horas (@24horaspt) August 4, 2025
Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira