Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. ágúst 2025 19:15 Hólmbert Aron er mættur til S-Kóreu. Gwangju FC Framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson hefur samið við lið Gwangju FC í Suður-Kóreu. Hann er fyrsti Íslendingurinn til að spila í efstu deild þar í landi.
Félagið sjálft hefur greint frá komu hins 32 ára Hólmberts. Hann er samkvæmt Wikipedia-síðu sinni 1.96 metri á hæð og það virðist hafa heillað forráðamenn liðsins. Í tilkynningu félagsins segir að það hafi verið í leit að hávöxnum framherja sem gæti sömuleiðis klárað færin sín. Gwangju er sem stendur í 6. sæti K League 1, efstu deildar Suður-Kóreu, með 32 stig að loknum 24 leikjum. Liðið hefur aðeins skorað 25 mörk og því er mikil pressa á að Hólmbert Aron komi inn af krafti. Suður-Kórea verður áttunda landið sem framherjinn hávaxni spilar í. Hér á landi hefur hann leikið með uppeldisfélagi sínu HK, Fram, KR og Stjörnunni. Hann fór fyrst ytra til að spila fyrir Celtic í Skotlandi. Þaðan lá leiðin til Bröndby í Danmörku á láni. Hann raðaði inn mörkum fyrir Álasund í Noregi og hefur einnig spilað fyrir Lilleström þar í landi. Stoppaði stutt við hjá Brescia á Ítalíu og hefur undanfarin ár verið í Þýskalandi. Fyrst hjá Holsten Kiel og svo síðast Preussen Münster í Þýskalandi. Samningur hans við síðastnefnda félagið rann út í sumar og því fær Gwangju uppalda HK-inginn á frjálsri sölu. Hólmbert Aron hefur spilað sex A-landsleiki og skorað tvö mörk. Þá lék hann 20 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði 8 mörk.
Fótbolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira