Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Agnar Már Másson skrifar 17. ágúst 2025 13:46 Í þetta sinn verður Selenskí ekki einn síns liðs þar sem Evrópuleiðtogar ætla að slást í hópinn með honum. AP Forsætisráðherra Íslands mun ekki sækja fund Bandaríkjaforseta og Úkraínuforseta í Hvíta húsinu í persónu en fjöldi þjóðarleiðtoga í Evrópu úr röðum „bandalags hinna viljugu“ er á leið til sækja fundinn á morgun eftir að hafa fengið boð frá Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti og Trump áttu í morgun, mánudag, sitja fund í Hvíta húsinu í framhaldi af fundi Trump með Vladimír Pútín Rússlandsforseta sem haldinn var í Alaska á föstudag í von um að stilla til friðar í innrásinni í Úkraínu. Í kjölfarið tilkynntu Trump og Selenskí að þeir hygðust funda á mánudag Í dag kom svo í ljós að fjöldi Evrópuleiðtoga ætlar að slást í hópinn með Selenskí. Keir Starmer forsætisráðherra Breta, Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu, Friedrich Merz Þýskalandskanslari, Alexander Stubb Finnlandsforseti, Emmanuel Macron Frakklandsforseti, Mark Rutte framkvæmdastjóri Nató og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins munu öll sitja fundinn að því er breska ríkisútvarpið hefur staðfest. Ísland er einnig í bandalagi hinna viljugu en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mun ekki sækja fundinn í persónu, staðfestir Kristín Ólafsdóttir aðstoðarmaður ráðherra. Óljóst er hvort hægt verði að sækja fundinn með fjarfundarbúnaði. Kristrún sat í dag fund bandalagsins í gegnum fjarfundarbúnað, að sögn aðstoðarmannsins, en Selenskí og von der Leyen áttu síðan tvíhliða fund í Brussel í Belgíu í dag. Selenskí sagði á blaðamannafundi á fundinum að það færi gegn stjórnarskrá Úkraínu að skiptast á landsvæðum, eins og Pútín hefur krafist. Kvaðst hann vonast eftir því að heimsóknin til Bandaríkjanna yrði árangursrík.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Donald Trump Vladimír Pútín Úkraína Rússland Bandaríkin Evrópusambandið NATO Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira