„Ætli þetta hafi ekki verið leikur tveggja hálfleika“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. ágúst 2025 21:28 Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, gat leyft sér að brosa í leikslok. Vísir/Guðmundur „Við töluðum bara um að við ætluðum að fara út og klára þennan seinni hálfleik eins og menn,“ sagði Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, eftir 4-3 endurkomusigur liðsins gegn Aftureldingu í kvöld.
Valsmenn voru 0-2 undir þegar flautað var til hálfleiks í kvöld, en liðið snéri taflinu við og skoraði fjögur mörk áður en Afturelding svaraði með einu sárabótarmarki í lokin. „Fyrri hálfleikur hjá okkur var bara ekki í boði. En við náðum að hrista það af okkur og ætli þetta hafi ekki verið svona leikur tveggja hálfleika,“ bætti Hólmar léttur við. Þegar flautað var til hálfleiks var í raun ekkert sem benti til þess að Valsmenn myndu snúa taflinu við, enda hafði liðið hreint út sagt spilað mjög illa fyrir hlé. En hvað breyttist? „Við höfum gert þetta nokkrum sinnum í sumar. Það er bara mikill karakter í þessu liði og við komum oft til baka eftir að hafa fengið skell í fyrri hálfleik. Við þurfum einhvernveginn að finna út úr því hvernig við getum byrjað leiki eins og við höfum oft verið að spila seinni hálfleikinn.“ „En ég er bara stoltur af liðinu því við komum virkilega grimmir út í þennan seinni hálfleik og skiluðum góðu verki þar, sem var nóg í dag.“ Valsmenn hafa orðið fyrir nokkrum áföllum undanfarið og misst mikilvæga leikmenn í meiðsli. Markvörðurinn Frederick Schram og markahrókurinn Patrick Pedersen eru frá vegna meiðsla, en Hólmar segir það ekki eiga að hafa of mikil áhrif á liðið. „Þetta eru tveir, og fleiri, góðir leikmenn sem okkur vantar. En við erum með virkilega breiðan hóp og menn sem koma í staðinn og þurfa að stíga upp núna. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því.“
Besta deild karla Valur Afturelding Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Sjá meira