„Ísland á betra skilið“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. september 2025 20:05 Guðrún Hafsteinsdóttir. Vísir/Anton Brink Formaður Sjálfstæðisflokksins fór hörðum orðum um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur í stefnuræðu sinni. Hún segir það að ganga inn í Evrópusambandið, líkt og ríkisstjórnin stefni að, þýði afturför í íslensku samfélagi. „
Forsætisráðherra virðist skorta nauðsynlegan vilja eða kraft til að fylgja þeirri stefnu sem hún boðaði fyrir kosningar. Í stað þess að draga úr ríkisútgjöldum hefur hún lagt til ný útgjöld og skattahækkanir, nýjar álögur, hækkuð auðlindagjöld og íþyngjandi regluverk sem dregur úr frumkvæði fyrirtækja. Afleiðingin blasir við. Afkoma heimilanna versnar og fyrirtækin standa frammi fyrir auknum álögum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. Hún beindi næst orðum sínum að fjármálaráðherra og sagði yfirlýsingar hans um að ekki stæði til að fara í skattahækkanir fela í sér skattahækkanir fyrir um þrjátíu milljarða króna. Slíkar hækkanir lendi á einstaklingum og fyrirtækjum. „Tekjuskattur hækkar með afnámi samnýtingar þrepa hjá hjónum, gjöld á ökutæki og eldsneyti hækka, álögur á raforkunotkun heimila aukast að ógleymdum krónutöluhækkunum. Að kalla þetta annað er að slá ryki í augu skattgreiðenda. Svona vinnum við ekki traust.“ Guðrún leggur til aðra leið og vill draga úr ríkisútgjöldum, tryggja festu í fjármálum ríkisins og skapa fyrirtækjum betri skilyrði til vaxtar og nýsköpunar. Ísland myndi missa sjálfstæða rödd sína Formaðurinn beindi næst orðum sínum að umræðunni um Evrópusambandið, en í samningi ríkisstjórnarinnar segir að boða eigi til atkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að halda áfram að vinna að inngöngu þeirra í sambandið fyrir árið 2027. Guðrún segir atkvæðagreiðsluna fyrstu skrefin á braut sem að þjóðin hafi ítrekað hafnað. „Aðild myndi þýða að við færum aftur í tímann. Við myndum missa forræði yfir fiskimiðunum. Við myndum missa forræði yfir öðrum auðlindum eins og vatni og hreinni orku. Við myndum missa sjálfstæða rödd á alþjóðavettvangi. Við myndum ganga aftur inn í tólf mílur eftir áratugalanga baráttu fyrir tvö hundruð mílna landhelgi,“ segir Guðrún. „Þetta er ekki framtíðarsýn sem Íslendingar geta sætt sig við.“ Hún segir það „vond forgangsröðun“ að Íslendingar sækist eftir aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þar séu einnig mörg vandamál að finna, líkt og hér þar sem bíði verðbólga, háir vextir og húsnæðisskortur. „Undirliggjandi virðist vera sú trú að evran sé töfralausn. En reynsla annarra þjóða sýnir að svo er ekki. Stöðugleiki næst ekki með því einu að skipta um gjaldmiðil heldur með ábyrgð í ríkisfjármálum og aga í efnahagsstjórn,“ segir Guðrún. Nýtt blómaskeið verði ekki til með sköttum „Við í Sjálfstæðisflokknum segjum, Ísland á betra skilið,“ segir Guðrún. Þau í flokknum vilji frekar ábyrga stefnu í stað aukinna útgjalda og skattahækkana og hagstæð skilyrði í atvinnulífinu. Þá leggja flokksmenn Sjálfstæðisflokksins til að Ísland nýti betur auðlindir sínar, efli sjálfbæra orkuframleiðslu, standi vörð um atvinnulífið og tryggi festu í útlendingamálum með ábyrgð og mannúð að leiðarljósi. „Við Íslendingar höfum alla burði til að skapa nýtt blómaskeið. Það gerum við ekki með nýjum sköttum. Ekki með því að afhenda öðrum yfirráð í okkar málefnum. Við gerum það með því að treysta á okkur sjálf. Á atvinnulífið, á auðlindirnar okkar og á þann kjark sem hefur fært þjóðinni farsæld eftir að hún öðlaðist langþráð frelsi og sjálfstæði á síðustu öld,“ segir Guðrún.
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira