Geislandi Vigdís og gat á skónum sem mátti ekki sjást Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. september 2025 10:02 Ljósmyndarinn rifjar upp nokkrar eftirminnilegar ljósmyndir sem hann tók af fyrirmennum. Vísir/Rax Rax fékk á árum sínum hjá Morgunblaðinu oft það verkefni að taka portrettmyndir af ráðamönnum og öðrum fyrirmennum þjóðarinnar. Hann rifjar nú upp eftirminnilegar myndir af Vigdísi Finnbogadóttur, Davíð Oddsyni og öðrum. „
Ég hef alltaf lagt mig fram, sama hver það er, að gera myndina eins flotta og ég get. Ein af þeim flottari sem maður tók mynd af var Vigdís forseti,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, betur þekktur sem Rax, um Vigdísi Finnbogadóttur. Ein eftirminnilegasta myndin sem Rax tók að eigin sögn var þessi af Vigdísi Finnbogadóttur. „Það var falleg morgunbirta sem kom inn og hún var eins og einn af geislunum, glæsileg og þessi mynd kom bara af sjálfri sér,“ segir hann. Rax fylgdi Vigdísi líka á ýmsa viðburði og segir að alls staðar sem hún kom hafi hún heillað fólk. „Þú sérð það á leiðtogafundi Reagan og Gorbachev að þeir voru bara eins og litlir feimnir strákar við hliðina á henni. Hún hafði svo flotta útgeislun,“ segir RAX. Ungir jafnt sem aldnir horfðu með aðdáun og hlýhug til Vigdísar. „Þú þarft að laga þessa mynd af borgarstjóranum“ RAX tók myndir af fleiri fyrirmönnum, Ólaf Ragnar Grímsson í forsetatíð hans, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra þegar hann viðurkenndi sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna og Jóhannes Nordal seðlabankastjóra. RAX myndaði líka Davíð Oddson á árum hans sem borgarstjóri við ýmis tilefni. Davíð tók á móti Elísabetu Englandsdrottningu við Höfða í heimsókn hennar og Filippusar til landsins árið 1990. Borgarstjórahjónin taka á móti Elísabetu Englandsdrottningu og Filippusi við Höfða árið 1990.Vísir/Rax Myndin sem RAX heldur mest uppá af Davíð er portrettmynd sem hann tók af honum á skrifstofu borgarstjóra. Sú mynd birtist í fyrsta sinn í upprunalegri útgáfu í sögu dagsins. „Þá kem ég að mynda hann á skrifstofunni. Hann tekur á móti mér glaðhlakkalegur og spyr hvernig mynd ég vilji. Ég horfi í augun á honum og segi: ,Ég hefði nú helst viljað fá þig á skyrtunni, með lappirnar upp á borð í símanum eins og Kennedy',“ segir Rax. „Ég var einmitt að hugsa um eitthvað svona,“ svaraði Davíð, setti lappirnar upp á borð og svaraði símanum sem hringdi einmitt. Óbreytt ljósmyndin sem Rax tók af Davíð Oddssyni fyrir Morgunblaðið.Vísir/Rax „Ég tek þessa mynd og tek eftir því að það er gat á skónum hans og sé strax að þetta er flottur punktur við myndina,“ segir Rax en þegar hann var búinn að senda myndina til Árna Jörgensen, yfirhönnuðar blaðsins, fékk hann símhringingu frá Styrmi Gunnarssyni. „Þú þarft að laga þessa mynd af borgarstjóranum,“ sagði Styrmir í símann. „Ókei, hvað þarf ég að gera?“ spurði Rax. „Þú þarft að dekkja skósólann, þú getur ekki haft borgarstjórann með gat á skónum,“ svaraði Styrmir. „Nei, þetta er það flotta við hann, það er að hann er eins og við hin, með gat á skónum,“ sagði Rax þá og naut stuðnings yfirhönnuðarins. Styrmir stóð hins vegar fastur á sínu og skósólinn var lagaður fyrir blaðið en nú birtist myndin af Davíð í fyrsta sinn í upprunalegri útgáfu með útslitnum skónum. Söguna af portrettmyndunum má sjá í spilaranum hér að neðan: Hér fyrir neðan má sjá fleiri sögur úr smiðju RAX: Vigdís og Reagan RAX segir söguna af því þegar Vigdís Finnbogadóttir og Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hittust. Vel fór á með þeim og náði RAX ógleymanlegum myndum. Sjálfstæðisbarátta Eystrasaltsríkjanna Árið 1990 lýstu Eystrasaltsríkin yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum og í janúar 1991 hélt Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, utan til þess að viðurkenna sjálfstæði þeirra fyrir hönd Íslands, fyrst ríkja heims. RAX fylgdi honum út ásamt öðru fjölmiðlafólki.
RAX Ljósmyndun Reykjavík Forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir Tengdar fréttir RAX AUGNABLIK: „Þeir verða eins og litlir strákar í höndunum á henni“ Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi. 30. ágúst 2020 07:00 RAX Augnablik: „Maður þurfti að passa sig á þessum gaurum sem voru þarna“ Á leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 var Ragnar Axelsson ljósmyndari í hópi fjölmiðlafólksins á staðnum. Hann tók þar eftirminnilegar myndir af Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna og Ronald Reagan, forsela Bandarikjanna. 10. janúar 2021 07:00 Mest lesið „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Lífið „Maður á ekki að vera feiminn við að vera fínn“ Tíska og hönnun Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Lífið Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Lífið Fékk veipeitrun Lífið Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Menning Fleiri fréttir Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Frumsýning á Vísi: Skoppa og Skrítla bjóða krökkunum í jólapartý Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Krafa um betri ensku en íslensku reyndust mistök Magnús nýr formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur „Erfiðasti skóli sem ég hef farið í“ Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Sjá meira
RAX AUGNABLIK: „Þeir verða eins og litlir strákar í höndunum á henni“ Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi. 30. ágúst 2020 07:00
RAX Augnablik: „Maður þurfti að passa sig á þessum gaurum sem voru þarna“ Á leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 var Ragnar Axelsson ljósmyndari í hópi fjölmiðlafólksins á staðnum. Hann tók þar eftirminnilegar myndir af Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna og Ronald Reagan, forsela Bandarikjanna. 10. janúar 2021 07:00