Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Lovísa Arnardóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 16. september 2025 12:08 Þorgerður Katrín segir sorglegt að þær þjóðir sem raunverulega hafi tak á Ísrael kjósi að beita sér ekki. Vísir/Ívar Fannar Utanríkisráðherra segir framferði Ísraela „galið“ og að Ísland fordæmi landhernað þeirra á Gasa harðlega. Hún segir skýrslu SÞ um að framið sé þjóðarmorð á Gasa styðja við ákall um frekari aðgerðir. Hún segir Ísland ekki griðarstað fyrir þá sem bera ábyrgð á stríðsglæpum. „
Þetta er galið framferði Ísraelshers, síðustu fréttir frá því í morgun að þeir eru byrjaðir að hreinsa allt út af Gasa. Þetta fordæmum við Íslendingar harðlega,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um fréttir í morgun um að Ísraelsher hafi hafið landhernað á Gasa í dag. Rætt var við Þorgerði Katrínu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ísraelsmenn hafi framið þjóðarmorð á Palestínumönnum á Gasa. „Það er alveg skýrt af hennar hálfu og ekki síst tók ég eftir því að hún er höfða til þeirra landa sem Ísrael hlustar á,“ segir Þorgerður Katrín um skýrslu nefndarinnar. Hún hvetur þessi lönd til að beita sér sérstaklega í því að setja enn frekari þrýsting á Ísrael. Hún segist sjálf hafa notað orð eins og þjóðernishreinum og þjóðarmorð um aðgerðir Ísraels á Gasa en það sé að lokum Alþjóðadómstólsins að dæma úr um það. Lögfræðileg skilgreining og dómstólsins að dæma „Það er lögfræðilega ákveðin skilgreining á slíku og það þarf að uppfylla, eins ömurlegt og það er, ákveðnar kröfur. Og við Íslendingar við stöndum með Alþjóðadómstólnum. Það veldur mér miklum áhyggjum hvernig ákveðin ríki, ákveðin stórveldi eru að beita ákveðnum kúgunartilburðum gagnvart Alþjóðadómstólnum,“ segir hún. Það sé áhyggjuefni fyrir Íslendinga sem eigi allt undir því að alþjóðalögum sé fylgt. Hún tali fyrir því að þau séu virt og sömuleiðis mannúðarlög og að það sé settur enn meiri þrýstingur á Ísrael. „Við erum að beita okkur í hvívetna hvað það varðar.“ Hvað varðar greinargerð Suður-Afríku fyrir dómstólnum segir Þorgerður Katrín að íslensk stjórnvöld séu að nýta tímann í samstarfi við vinaþjóðir, líkt þenkjandi ríki, til að skoða með hvaða hætti hægt sé að komast að í henni. Hún segist búast við því að sjá lögfræðilega niðurstöðu á einhverjum ramma undir lok október. Það sé tími til 12. janúar en það sé verið að skoða hvaða leiðir eru færar og hvaða möguleikar séu í boði. „Ég vil gjarnan sjá að það skref verði stigið en tæknilega er það að einhverju leyti snúið.“ Ísraelskir hermenn skemmtu sér í sumar í miðborg Reykjavíkur. Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur gagnrýnt þetta. Þorgerður Katrín segist hafa frétt af þessu í morgun og ætli því að áskilja sér rétt til að skoða þetta betur og kafa ofan í þetta. „En ég vil þó segja að það er alveg skýrt í mínum huga að Ísland er ekki griðastaður fyrir þá einstaklinga sem bera ábyrgð á stríðsglæpum, fyrir þá einstaklinga sem taka þátt í stríðsglæpum, þannig það er alveg skýrt og það eru mín skilaboð til þeirra sem eru að hugsa sér að koma hingað til Íslands í hvaða erindagjörðum sem það eru. Ísland er ekki griðastaður fyrir stríðsglæpamenn.“ Mannréttindaráðið ætti að beita sér Þorgerður Katrín segist hafa beitt öllum sínum tólum á alþjóðlegum fundum og í tvíhliða samtölum við aðra ráðherra annarra ríkja að þau verði að setja meiri þrýsting á Ísrael til þess að koma að mannúðaraðstoð og hætta að vera síbrotamenn þegar kemur að alþjóða- og mannúðarlögum. „Ég undirstrika að það er alþjóðadómstóla að segja til um ákveðna hluti. Við sáum það til að mynda í Sbrenica að það var mjög takmarkað hvað var flokkað þar sem þjóðarmorð. Það var alþjóðadómstóllinn sem dæmir þar. Eins þungt og það getur verið. En mér finnst núna, eftir þessa skýrslu Sameinuðu þjóðanna, þá er alveg skýrt að til að mynda Mannréttindaráðið sem við erum aðilar að til þriggja ára hlýtur að taka þetta upp með bæði markvissum og þungum hætti. Við Íslendingar við höfum alltaf notað öll okkar tækifæri til að tala fyrir mannréttindum, tala fyrir því að mannúðaraðstoð verði veitt inn á Gasa og að sjálfsögðu að öllum gíslum verði sleppt líka lausum þannig það verði hægt að koma á vopnahléi. Þetta ástand sem er þarna er þyngra en tárum taki og það versta sem er í þessu er að þær þjóðir sem raunverulega hafa tak á Ísraelum eru ekki að beita sér nóg.“
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Utanríkismál Tengdar fréttir Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Fríverslunarsamningur Íslands og annarra EFTA-ríkja við Ísrael verður ekki uppfærður og tveir ísraelskir ráðherrar verða settir í farbann, sem felur í sér að þeir mega ekki ferðast til Íslands og mega ekki fara um íslenska lofthelgi. Þá verða vörur frá hernumdum svæðum Ísraela merktar, auk þess sem farið verður í aðrar aðgerðir. 8. september 2025 18:56 Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Utanríkisráðherra mun halda á fund utanríkismálanefndar á morgun til að kynna mögulegar aðgerðir gegn Ísrael vegna ástandsins á Gaza. Meðal þess sem verður rætt er sá möguleiki að slíta fríverslunarsamningi við Ísrael. 7. september 2025 12:08 Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Innlent Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Innlent „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ Innlent Fleiri fréttir Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Sjá meira
Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Fríverslunarsamningur Íslands og annarra EFTA-ríkja við Ísrael verður ekki uppfærður og tveir ísraelskir ráðherrar verða settir í farbann, sem felur í sér að þeir mega ekki ferðast til Íslands og mega ekki fara um íslenska lofthelgi. Þá verða vörur frá hernumdum svæðum Ísraela merktar, auk þess sem farið verður í aðrar aðgerðir. 8. september 2025 18:56
Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Utanríkisráðherra mun halda á fund utanríkismálanefndar á morgun til að kynna mögulegar aðgerðir gegn Ísrael vegna ástandsins á Gaza. Meðal þess sem verður rætt er sá möguleiki að slíta fríverslunarsamningi við Ísrael. 7. september 2025 12:08