Átök í Ísrael og Palestínu

Fréttamynd

Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu

Hollendingar snúa aftur í Eurovision árið 2027 eftir að hafa sniðgengið síðustu keppni vegna þátttöku Ísraela. Írska ríkisútvarpið heldur sniðgöngu sinni áfram en Rúv hefur enn ekki ákveðið hvort Íslendingar muni taka þátt.

Innlent
Fréttamynd

Erfið og leiðin­leg staða fyrir Heimi að vera í

Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni.

Sport
Fréttamynd

Öll spjót beinast að Írum og Heimi

Heimir Hallgrímsson dansar erfiðan línudans þessa dagana vegna komandi leikja Írlands við Ísrael í Þjóðadeildinni í fótbolta. Undirskrifalistar, mótmæli og harðorð viðtöl við fyrrum landsliðsmenn eru meðal þess sem blasir við í írskum fjölmiðlum.

Fótbolti
Fréttamynd

Sheeran og Gaza

„Þessir tónleikar eru enn staður þar sem allir eru velkomnir og geta staðið við hlið þeirra sem hafa andstæðar skoðanir.“

Skoðun
Fréttamynd

Sheeran bað að­dá­endur af­sökunar

Ed Sheeran bað aðdáendur sína afsökunar á því að hafa gert „mistök“ þegar hann hélt sína fyrstu tónleika eftir að rapparinn Macklemore var rekinn af tónleikaferð hans fyrir að lýsa yfir stuðningi við Palestínu á tónleikum þegar hann hitaði upp fyrir Sheeran.

Tónlist
Fréttamynd

Macklemore svarað

Bandaríski viðskiptajöfurinn Robert Kraft segir að hann og tónlistarmaðurinn Ed Sheeran muni jafna framlag rapparans Macklemore til mannúðarmála á Gasa í Palestínu og meira til, bæta fjórum milljónum Bandaríkjadollara ofan á milljón rapparans. Rapparinn hafði skorað á auðjöfurinn að gera þetta eftir að Macklemore var sparkað sem upphitunaratriði fyrir Sheeran.

Lífið
Fréttamynd

Írar ekki með í Euro­vision annað árið í röð

Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Írar tóku ekki þátt í Eurovision í fyrra eins og Ísland, Holland og Spánn.

Tónlist
Fréttamynd

Skorar á Kraft að jafna fram­lag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa

Tónlistarmaðurinn Macklemore tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta allan ágóða af tónleikaferðalagi sínu með Ed Sheeran, um eina milljón dollara, renna til neyðaraðstoðar á Gasa. Hann skoraði á sama tíma á Robert Kraft, eiganda New England Patriots, sem krafðist þess að hann yrði fjarlægður af tónleikaferðalagi Sherrand, að gefa sömu upphæð til neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum.

Lífið
Fréttamynd

Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“

Macklemore segir Ed Sheeran hafa verið beittan þrýstingi af Roberti Kraft og öðrum bandarískum leikvangaeigendum sem varð til þess að Sheeran sparkaði rapparanum af tónleikaferðalagi sínu. Pólitísku hlutleysi Sheerans hefði loksins verið ögrað og hann ekki þorað að velja sér hlið. Þegar kæmi að Palestínu væri hlutleysi afstaða og Sheeran væri þar með að taka afstöðu gegn hinum undirokuðu.

Lífið
Fréttamynd

Ed Sheeran sparkar Macklemore

Bandaríski rapparinn Macklemore fær ekki að hita upp fyrir fleiri tónleika hjá breska söngvaranum Ed Sheeran eftir ummæli um frjálsa Palestínu á tónleikum fyrr í þessum mánuði. Ummælin fóru fyrir brjóstið á eigendum leikvanga sem vildu ekki leyfa rapparanum að stíga á svið.

Lífið
Fréttamynd

Sniðgöngum öll

Þriðjudaginn 8. september tilkynntu ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands og Kanada að þau myndu innleiða innflutningsbann á allar vörur sem framleiddar væru á því sem oft er kallað hernumdu svæðin í Palestínu.

Skoðun
Fréttamynd

Banna breskum þing­mönnum að koma til Ísraels

Ísraelsk stjórnvöld ætla að banna ellefu breskum þingmönnum að koma til landsins og láta loka bresku ræðisskrifstofunni í Jerúsalem. Það er hluti af svari þeirra var refsiaðgerðum Breta gegn landtökubyggðum gyðinga á hernumndum svæðum Palestínumanna.

Erlent
Fréttamynd

Vanti ekki fjár­magn eða hjálpar­gögn heldur þrýsting á Ís­rael

Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans, segir stöðuna skelfilega á Gasa í dag og hún versni bara. Hann segir ekki þörf á meira fjármagni eða hjálpargögnum en kallar eftir því að Ísland, og alþjóðasamfélagið allt, þrýsti á Ísrael að hleypa Rauða krossinum inn á Gasa með hjálpargögn og fólki út sem þarf á læknisaðstoð að halda. Al-Khatib segir stöðuna ekkert betri þó svo að samið hafi verið um vopnahlé á svæðinu í október í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Gagnaver, Verne og Ísrael

Vart fer fram hjá neinum að gagnaver spretta nú upp um heimsbyggðina vítt og breitt. Á Íslandi eru a.m.k. fjögur og fer fjölgandi. Um leið berast fregnir miklum vexti þeirra og orkuþörfin virðist vaxa svo gegndarlaust að jafnast við fár.

Skoðun
Fréttamynd

Ætlar ekki að láta kúga sig

Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún neitar sök, segir málið skrípaleik og ætlar ekki að láta kúga sig.

Innlent
Fréttamynd

Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðs­dómi

Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem ákæran var tekin fyrir, sem snýr að landssöfnun Solaris samtakanna fyrir Palestínu árið 2024. Solaris hélt utan um fjársöfnunina og ráðstafaði fénu sem safnaðist til aðstoðar flóttafólki frá Palestínu.

Innlent
Fréttamynd

Hollendingar lík­lega ekki með í Euro­vision á næsta ári

Hollenska sjónvarpsstöðin AVROTROS ætlar að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. Hollendingar tóku ekki þátt í keppninni í ár og stöðin segir hana ekki lengur vera hlutlausa vegna þátttöku ríkja sem eigi í átökum. 

Erlent
Fréttamynd

Fimm ríki for­dæma nýjar landtökubyggðir á Vestur­bakkanum

Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði.

Erlent
Fréttamynd

Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru

Ítamar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, hefur vakið hörð viðbrögð, bæði heima fyrir og erlendis, eftir að hafa birt myndband af heimsókn sinni á byggingarsvæði gálga sem notaður verður til að hengja Palestínumenn sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk.

Erlent
Fréttamynd

Ísraels­her viður­kennir að hafa skotið fimm ára stúlku

Ísraelsher hefur í fyrsta sinn viðurkennt að hafa, árið 2024, hafið skotárás á bíl sem í var sex manna palestínsk fjölskylda, þar á meðal fimm ára gömul stúlka, Hind Rajab, sem lést seinna af sárum sínum. Ísarelsher greindi frá því í dag að hefja ætti rannsókn á atvikinu. 

Erlent