Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. október 2025 19:35 Úkraínski hornamaðurinn Ihor Kopyshynskyi skoraði sex mörk gegn ÍBV. vísir/anton Þrátt fyrir að vera fimm mörkum undir þegar tæpar átján mínútur voru eftir vann Afturelding ÍBV, 27-22, í sextán liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta.
ÍBV var sterkari aðilinn framan af leik og leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 8-12. Á 43. mínútu kom Andri Erlingsson Eyjamönnum fimm mörkum yfir, 12-17. Þá hrukku Mosfellingar loksins í gang. Afturelding skoraði sex mörk gegn einu og jafnaði í 18-18. Liðin héldu í hendur næstu mínúturnar en Mosfellingar skoruðu svo sex mörk í röð og komust í 27-21. Eyjamenn skoruðu síðasta mark leiksins og lokatölur því 27-22, Mosfellingum í vil. Afturelding vann síðustu átján mínútur leiksins, 15-5. Mögnuð endurkoma hjá Mosfellingum sem hafa byrjað tímabilið vel og eru á toppi Olís-deildarinnar. Ihor Kopyshynskyi skoraði sex mörk fyrir Aftureldingu og Stefán Magni Hjartarson fimm. Sigurjón Bragi Atlason varði átján skot í marki heimamanna. Andri var markahæstur í liði ÍBV með sex mörk. Jakob Ingi Stefánsson skoraði fimm og Petar Jokanovic varði tólf skot, flest í fyrri hálfleik.
Powerade-bikarinn Afturelding ÍBV Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira