Hitnar undir feldi Lilju Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. október 2025 15:58 Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknar. Vísir/Vilhelm Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins segist ekki vera búin að taka ákvörðun um það hvort hún bjóði sig fram til formanns flokksins. Hún tók þátt í pallborði í gær í Iðnó um bókun 35 og er nú á leið út á land að hitta flokksmenn í Framsókn. „
Það var troðfullur salur fyrir það fyrsta, sem er ánægjulegt og sýnir að það er fullt af fólki sem lætur þessi fullveldis- og frelsismál sig miklu máli varða,“ segir Lilja í samtali við Vísi. Pallborðið bar yfirskriftina Ögurstund í lífi þjóðar: Endalok þjóðveldis - endalok lýðveldis? Var boðað til þess af nokkrum félögum, meðal annars Heimssýn og Orkunni okkar. Auk Lilju voru framsögumenn á fundinum Arnar Þór Jónsson, Erla Bjarnadóttir, Haraldur Ólafsson, Hjörtur J. Guðmundsson, Jón Bjarnason og Sigríður Andersen. Alltaf verið andsnúin „Ástæðan fyrir því að ég þáði boðið um að taka til máls á þessum fundi er sú að ég tel að Ísland verði að hafa full yfirráð yfir sínum auðlindum til að hagsæld og velferð verði áframhaldandi. Ég tel að EES-samningurinn uppfylli okkar viðskiptalegu kröfur en að hitt sé alltof stórt skref. Við verðum að passa upp á þessi mál til að geta notið þeirra auðlinda sem landið hefur upp á að bjóða, ef við förum inn í ESB erum við að fara inn í ríkjasamband og áhrif okkar til að ráða okkar málum sjálf munu dvína.“ Lilja segir sína skoðun á málinu ekki hafa breyst frá því hún sat sem ráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, sem studdi málið. Það hafi ekki komið til afgreiðslu Alþingis á sínum tíma. „Ég hef verið mótfallin því að bókun 35 í núverandi mynd, eins og málið hefur verið lagt upp, nái fram að ganga. Bókun 35 felur í sér að íslensk stjórnvöld viðurkenni forgang EES-réttar fram yfir landslög. Stjórnarskráin hefur ekki gert ráð fyrir svona íþyngjandi yfirþjóðlegri löggjöf. Við verðum að ráða okkar málum sjálf,“ segir Lilja. „Það er ekkert leyndarmál að ég hef alltaf verið skeptísk á þetta mál og að ég tel að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Ég er hins vegar hlynnt samningnum um evrópska efnahagssvæðið á meðan það þjónar okkar hagsmunum og hef þá trú að því meira sem þjóðríki ráði sínum málum og framtíð sjálf því líklegra sé að þau nái árangri og samkeppnishæfni.“ Fengið áskoranir um formannsframboð Lilja leiddi lista Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi suður í síðustu alþingiskosningum en flokkurinn náði engum manni þar inn á þing. Flokkurinn fékk 7,8 prósenta fylgi í kosningunum og hefur fylgi flokksins í nýjustu skoðanakönnunum mátt muna fífil sinn fegurri. Mældist hann síðast með 5,8 prósenta fylgi í þjóðarpúlsi Gallup, þar áður 4,5 prósent og því út af þingi. Stjórnarandstaðan á þingi hefur auk þess mælst fremur óvinsæl ef marka má nýjustu skoðanakönnun Maskínu. Þegar Vísir náði tali af Lilju var hún í óðaönn við að undirbúa sig undir ferðalag út á land, að hitta flokksmenn á Egilsstöðum, í Vík og á Selfossi, enda varaformaður flokksins. Það fer mikið fyrir þér þessa dagana, þú hlýtur að ætla að bjóða þig fram til formanns Framsóknar? „Ég hef fengið áskoranir, en ég hef ekki tekið ákvörðun um það. Ég er einlæg með það,“ segir Lilja. Miðstjórnarfundur flokksins fer fram þann 18. október næstkomandi og verður þá ákveðið hvenær næsta flokksþing fer fram, þar sem kosið verður til embættis formanns. Lilja segist sjá mikil sóknartækifæri í kortunum fyrir flokkinn. „Ég held að sú efnahagsstefna sem ríkisstjórnin er að framfylgja eigi eftir að reyna miklu meira á hana. Þjóðin var ekki sammála stjórnarandstöðunni í málþófinu, það hefur komið í ljós. Það eru klárlega sóknarfæri vegna þess að það eru miklir veikleikar í efnahagsstjórninni, verðbólgan hefur hækkað, vextir eru ekki að lækka og það er algjörlega óásættanlegt fyrir íslensk heimili.“
Framsóknarflokkurinn Bókun 35 Tengdar fréttir Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Varaformaður Framsóknarflokksins segist telja að breytingar þurfi að eiga sér stað innan flokksins. Hún hafi ekki tekið ákvörðun um hvort hún vilji leiða flokkinn. 21. september 2025 11:50 Óánægja með stjórnarandstöðu í hæstu hæðum Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar eykst á milli fjórðunga og hefur ekki verið meiri í á fimmta ár. Á sama tíma eykst óánægjan nokkuð og þar með fækkar í hópi þeirra sem höfðu ekki skoðun á ríkisstjórninni. Óánægja með störf stjórnarandstöðunnar er í hæstu hæðum. 7. október 2025 10:40 Bókun 35 fór hnökralaust í gegnum fyrstu umræðu en gæti reynt á í næstu Bókun 35 verður aftur tekin fyrir í utanríkismálanefnd Alþingis eftir að fyrstu umræðu um frumvarp utanríkisráðherra lauk í kvöld. Líklega fer það óbreytt í aðra umræðu en spurning er hvort ríkisstjórnin muni aftur finna sig knúna til að beita „kjarnorkuákvæðinu“ til að þvinga það í gegnum aðra umræðu, sem stjórnarliðar hafa ekki útilokað. 18. september 2025 20:18 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira
Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Varaformaður Framsóknarflokksins segist telja að breytingar þurfi að eiga sér stað innan flokksins. Hún hafi ekki tekið ákvörðun um hvort hún vilji leiða flokkinn. 21. september 2025 11:50
Óánægja með stjórnarandstöðu í hæstu hæðum Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar eykst á milli fjórðunga og hefur ekki verið meiri í á fimmta ár. Á sama tíma eykst óánægjan nokkuð og þar með fækkar í hópi þeirra sem höfðu ekki skoðun á ríkisstjórninni. Óánægja með störf stjórnarandstöðunnar er í hæstu hæðum. 7. október 2025 10:40
Bókun 35 fór hnökralaust í gegnum fyrstu umræðu en gæti reynt á í næstu Bókun 35 verður aftur tekin fyrir í utanríkismálanefnd Alþingis eftir að fyrstu umræðu um frumvarp utanríkisráðherra lauk í kvöld. Líklega fer það óbreytt í aðra umræðu en spurning er hvort ríkisstjórnin muni aftur finna sig knúna til að beita „kjarnorkuákvæðinu“ til að þvinga það í gegnum aðra umræðu, sem stjórnarliðar hafa ekki útilokað. 18. september 2025 20:18