„Tímarnir hafa einfaldlega breyst“ hjá þýska landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2025 13:47 Það er núna pressa á Florian Wirtz og félögum hans í þýska landsliðinu sem mega ekki misstíga sig meira í undankeppni HM. Getty/ Stuart Franklin Þjóðverjar eru í vandræðum í undankeppni HM í fótbolta og allt í einu eru líkur á því að við fáum heimsmeistaramót án þýska landsliðsins. Það hefur ekki gerst í 76 ár.
Óvænt 2-0 tap Þjóðverja gegn Slóvakíu í undankeppni HM í síðasta glugga þýðir að liðið hans Julians Nagelsmann gæti þurft að vinna alla sína leiki sem eftir eru í undankeppninni. Liðið þarf að byrja á sigrum gegn Lúxemborg í kvöld og Norður-Írlandi á mánudaginn. „Allir búast við því að við vinnum alla andstæðinga 5-0, 6-0 en það er ekki lengur hægt,“ sagði miðjumaðurinn Nadiem Amiri við þýsku fréttastofuna DPA. „Tímarnir hafa einfaldlega breyst. Allir eru góðir, allir geta staðið sig. Fyrir okkur er bara mikilvægt að vinna. Við þurfum sigur á eftir sigri,“ sagði Amiri. Fyrirkomulag undankeppninnar, fjögurra liða riðill þar sem aðeins sigurvegarinn kemst sjálfkrafa áfram, þýðir að Þýskaland verður að vinna alla sína leiki sem eftir eru nema Slóvakía misstígi sig, og komast líka fram úr Slóvakíu á markamun. Annað sætið myndi setja Þýskaland í umspil fjögurra liða sem keppa um eitt sæti snemma á næsta ári. Þar til þeir töpuðu í Slóvakíu í síðasta mánuði höfðu Þjóðverjar aldrei tapað leik í undankeppni HM á útivelli. Einu skiptin sem þeir hafa misst af HM karla voru á fyrsta þettandi liða mótinu árið 1930, sem þeir slepptu ásamt flestum Evrópuþjóðum, og árið 1950, þegar þeir voru útilokaðir í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira