Sýrlendingar samþykkja að taka við Kourani Árni Sæberg skrifar 16. október 2025 17:17 Mohamad Kourani í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir Yfirvöld í Sýrlandi hafa samþykkt að taka við Mohamad Kourani, sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir rúmu ári, verði hann sendur þangað. Nú stendur það aðeins á náðunarnefnd að hann verði fluttur úr landi og settur í endurkomubann í áratugi.
Líkt og Vísir greindi frá um miðjan september, hefur Kourani afsalað sér alþjóðlegri vernd hér á landi og Útlendingastofnun hefur birt honum ákvörðun um brottvísun, sem felur í sér þrjátíu ára endurkomubann. Fangar sem ákveðið hefur verið að vísa af landi brott þurfa samkvæmt lögum um fullnustu refsinga aðeins að afplána helming refsingar sinnar. Kourani mun því aðeins þurfa að afplána fjögur ár af átta ára dómi sem hann hlaut í fyrra fyrir tilraun til manndráps. Vill náðun af heilbrigðisástæðum Það er að segja ef umsókn hans til náðunarnefndar um náðun af heilbrigðisástæðum verður hafnað. Fallist nefndin hins vegar á náðunarbeiðnina mun hann geta um frjálst höfuð strokið að undangengnu samþykki dómsmálaráðherra og forseta Íslands. Þá vantar aðeins eitt til þess að unnt verði að flytja hann til síns heima í Sýrlandi, samþykki þarlendra yfirvalda. Samkvæmt heimildum Vísis hafa stjórnvöld Íslands og Sýrlands átt í samtali vegna máls Kouranis og Sýrlendingar þegar samþykkt að taka á móti honum. Það samþykki hafi raunar legið fyrir lengi. Nú stendur það því aðeins á náðunarnefnd að Kourani verði fluttur til Sýrlands. Náðunarbeiðni hans hefur nú verið til meðferðar hjá nefndinni í rúman mánuð. Málsmeðferðartími hennar getur að sögn kunnugra verið mjög mislangur, allt frá einum mánuði til tíu mánaða. Hefur valdið usla á Kleppi Kourani var nýverið fluttur á réttargeðdeild frá Litla-Hrauni. Frá því að hann hóf afplánun á Litla-Hrauni hefur hann ítrekað ráðist á fangaverði og meðal annars skvett á þá hlandi eða saur. Líkt og Vísir greindi frá í dag var lögregla kölluð að réttar- og öryggisgeðdeild Landspítalans á Kleppi síðdegis á sunnudag vegna atviks sem sneri að Kourani ásamt sérsveit Ríkislögreglustjóra. Að sögn fulltrúa lögreglunnar var viðbragðið á sunnudag ekki meira en gengur og gerist þegar lögregla aðstoðar hinar ýmsu stofnanir, sem hún geri reglulega. Aðkoma sérsveitarinnar hafi verið fyrir tilviljun en hún bregðist reglulega við almennum verkefnum þegar fulltrúar hennar eru í nágrenni þeirra.
Mál Mohamad Kourani Sýrland Hælisleitendur Dómsmál Tengdar fréttir Kourani fluttur á Klepp Mohamad Kourani hefur verið fluttur á réttargeðdeild á Kleppi þar sem hann gengst undir lyfjameðferð. Síðastliðnu ári hefur hann varið í einangrunarklefa vegna árásargjarnar og ofbeldisfullar hegðunar. 10. október 2025 20:27 Kourani sótti um náðun af heilbrigðisástæðum Sjálfstæð náðunarnefnd hefur umsókn frá Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Kourani, um náðun af heilbrigðisástæðum til meðferðar. Aðeins ár er liðið frá því að hann hlaut átta ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot. 19. september 2025 10:30 „Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi vararíkissaksóknari segir það hafa reynt á taugakerfið að sitja undir áreiti og hótunum Mohamad Khourani. Hann hafi óttast um líf fjölskyldu sinnar en segist hafa mætt fálæti yfirmanna. Hann óttast að Kourani muni eiga auðvelt með að snúa aftur til landsins. 18. september 2025 19:20 „Ég mun ekki sjá eftir honum“ „Megi hann fara og vera en ég vona svo sannarlega að hann komi aldrei aftur til Íslands,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi vararíkssaksóknari um nýjustu vendingar í máli Mohamads Kourani. Helgi, sem sætti líflátshótunum frá Kourani í mörg ár, er þó viss um að Kourani komist áfallalaust inn í landið á ný reyni hann það. 15. september 2025 20:35 Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Formaður Afstöðu, félags fanga, hvetur dómsmálaráðherra til að náða Mohamad Kourani og senda hann úr landi strax á morgun. Hann hefur afsalað sér alþjóðlegri vernd og því mætti vísa honum úr landi umsvifalaust eftir náðun. Að óbreyttu þarf hann að afplána helming fangelsisdóms síns áður en hægt verður að vísa honum úr landi árið 2028 15. september 2025 16:47 Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Fleiri fréttir Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Sjá meira
Kourani fluttur á Klepp Mohamad Kourani hefur verið fluttur á réttargeðdeild á Kleppi þar sem hann gengst undir lyfjameðferð. Síðastliðnu ári hefur hann varið í einangrunarklefa vegna árásargjarnar og ofbeldisfullar hegðunar. 10. október 2025 20:27
Kourani sótti um náðun af heilbrigðisástæðum Sjálfstæð náðunarnefnd hefur umsókn frá Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Kourani, um náðun af heilbrigðisástæðum til meðferðar. Aðeins ár er liðið frá því að hann hlaut átta ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot. 19. september 2025 10:30
„Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi vararíkissaksóknari segir það hafa reynt á taugakerfið að sitja undir áreiti og hótunum Mohamad Khourani. Hann hafi óttast um líf fjölskyldu sinnar en segist hafa mætt fálæti yfirmanna. Hann óttast að Kourani muni eiga auðvelt með að snúa aftur til landsins. 18. september 2025 19:20
„Ég mun ekki sjá eftir honum“ „Megi hann fara og vera en ég vona svo sannarlega að hann komi aldrei aftur til Íslands,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi vararíkssaksóknari um nýjustu vendingar í máli Mohamads Kourani. Helgi, sem sætti líflátshótunum frá Kourani í mörg ár, er þó viss um að Kourani komist áfallalaust inn í landið á ný reyni hann það. 15. september 2025 20:35
Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Formaður Afstöðu, félags fanga, hvetur dómsmálaráðherra til að náða Mohamad Kourani og senda hann úr landi strax á morgun. Hann hefur afsalað sér alþjóðlegri vernd og því mætti vísa honum úr landi umsvifalaust eftir náðun. Að óbreyttu þarf hann að afplána helming fangelsisdóms síns áður en hægt verður að vísa honum úr landi árið 2028 15. september 2025 16:47