Selja Adalvo og stjórnandi frá Alvotech fylgir Árni Sæberg skrifar 22. október 2025 10:18 Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech. Vísir/Vilhelm Eignarhaldsfélagið Aztiq hefur lokið við sölu á lyfjafyrirtækinu Adalvo til alþjóðlega fjárfestingarfélagsins EQT. Á sama tíma lætur framkvæmdastjóri Alvotech af störfum og færir sig yfir til Adalvo. Stærsti eigandi Alvotech er Aztiq.
Í fréttatilkynningu frá Aztiq segir að félagið hafi stofnað Adalvo árið 2018, en félagið hafi milligöngu um samninga milli lyfjafyrirtækja varðandi skráningu og markaðssetningu samheitalyfja. Adalvo vinni með fleiri en 170 lyfjafyrirtækjum í 140 löndum um allan heim og hjá því starfi um 280 manns. „Ég er gríðarlega ánægður með þessi viðskipti og hlakka til samstarfsins við EQT, sem minnihlutaeigandi í Adalvo. Stjórnendur Adalvo hafa náð frábærum árangri á undanförnum árum. Ég er sannfærður um að vaxtartækifæri á þessum markaði séu mörg og Adalvo eigi mjög spennandi framtíð fyrir höndum,“ er haft eftir Róberti Wessman, stofnanda og stjórnarformanni Aztiq. Okay fylgir Í fréttatilkynningu frá Alvotech er greint frá skipulagsbreytingum á viðskiptasviðið félagsins. Anil Okay framkvæmdastjóri viðskiptasviðs láti af störfum og verði forstjóri áðurnefnds Adalvo. Leiðtogar á viðskiptasviði félagsins verði Trisha Durant, sem sé yfirmaður viðskipta og samstarfsverkefna utan Norður-Ameríku, Harshika Sarbajna, sem sé yfirmaður viðskipta og samstarfsverkefna í Norður-Ameríku og Agne Pasko, sem sé forstöðumaður í viðskiptaþróun. „Ég vil þakka Anil fyrir frábæran árangur við að leiða viðskiptaþróun og markaðsstarf Alvotech á undanförnum árum. Það eru sjö ár síðan við stofnuðum Adalvo og gott að vita að félagið sem er mér kært verði áfram í góðum höndum. Alvotech býr að frábæru leiðtogateymi á viðskiptasviði, Trishu sem gekk nýlega til liðs við félagið, Harshiku og Agne. Ég treysti þeim fyllilega til að viðhalda velgengni félagsins í markaðsmálum og viðskiptaþróun,“ er haft eftir Róberti Wessman, sem er forstjóri og stjórnarformaður Alvotech. Frá vinstri: Agne Pasko, Harshika Sarbajna og Trisha Durant. Alvotech/Vísir
Alvotech Kaup og sala fyrirtækja Lyf Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið Sjá meira